154. löggjafarþing — 56. fundur,  22. jan. 2024.

kjör íslenskra lífeyrisþega sem búsettir eru erlendis.

[17:29]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Frú forseti. Hv. þingmaður spyr: Hvernig í ósköpunum er hægt að búa til svona kerfi? Ég ætla að segja eins og ég hef sagt svo oft áður við hv. þingmann: Það er auðvitað löngu tímabært að fara í þessa heildstæðu endurskoðun og nú eigum við von á frumvarpi frá hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra um endurskoðun á almannatryggingakerfinu því að við búum við kerfi þar sem er búið að bæta og plástra og bæta við og taka af og setja inn í. Það auðvitað gerir það að verkum, og við erum bara sammála um það, ég og hv. þingmaður, að þetta kerfi er ógagnsætt. Það er erfitt að átta sig á því og það er auðvitað ákveðin lífskjaraskerðing fyrir þau sem reiða sig á þetta kerfi hversu ógagnsætt kerfið er. En ég bara vona að þegar það frumvarp kemur fram sem boðað hefur verið af hálfu hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra verði þar m.a. búið að skoða þau atriði sem hv. þingmaður fór yfir í sinni fyrirspurn og mörg þau önnur sem hann hefur komið að í fyrri ræðum um þessi mál.