mótvægisaðgerðir á húsnæðismarkaði vegna ástandsins í Grindavík.
Ég þakka aftur fyrirspurnina. Í vinnu þessa spretthóps kom í ljós að það væri eitthvað á fjórða þúsund lóðir sem væru meira og minna byggingarhæfar á suðvesturhorninu. Mjög margar á Suðurnesjum, einhverjar á Suðurlandi, uppi á Akranesi, en líka hérna á höfuðborgarsvæðinu, þó mismunandi eftir sveitarfélögum og sum sveitarfélög eru komin í ákveðið landþrot. Mér fannst yfirlýsingar nýs borgarstjóra vera mjög jákvæðar og þau samtöl sem ég hef átt við hann um að hann vildi reyna að nýta frekar lóðir sem væri hægt að byggja hratt upp, eins og í Úlfarsárdal og jafnvel á Keldnaholti og þar í kring. Til að bæta því við þá eru lóðir til á þéttingarreitum sem eru ekki endilega þær heppilegustu fyrir þá uppbyggingu sem við erum að tala um, hratt og vel. Aðrir þættir sem myndu lúta að framboðinu eru alveg klárlega að flytja inn í stórum stíl húseiningar sem myndu hjálpa til við að ná jafnvægi á markaðnum. (Forseti hringir.) Það eru hugmyndir um að þrengja að skammtímaleigumarkaðnum, sem mun líka hjálpa til, og fleiri aðgerðir sem við þurfum að gera. (Forseti hringir.) En ég þakka hv. þingmanni fyrir að taka þetta upp.