154. löggjafarþing — 56. fundur,  22. jan. 2024.

háskólar.

24. mál
[17:38]
Horfa

háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um háskóla, nr. 63/2006, um svokallað örnám og fyrirkomulag framsetningar á viðurkenndum prófgráðum. Framboð á styttra námi á háskólastigi er mikilvægur þáttur í að styðja við og efla starfstengt nám ásamt því að auka sveigjanleika og fjölbreytni í námsframboði á háskólastigi.

Íslenskir háskólar bjóða þegar í dag upp á stuttar námsbrautir sem leiða til 30 eininga diplómagráða eða viðbótargráða á meistarastigi.

Samevrópska háskólasvæðið hefur þróað ramma um viðurkenningu náms og er Ísland hluti af þessu samstarfi og hefur markað sér samsvarandi ramma sem tryggir gagnkvæma viðurkenningu náms innan Evrópu. Þróunin á hinu samevrópska háskólasvæði hefur verið sú að diplómagráður og viðbótargráður á meistarastigi jafngilda almennt 60–90 stöðluðum námseiningum en því til viðbótar er boðið upp á styttra nám eða svokallað örnám, á ensku nefnt „micro-credentials“.

Örnám hefur ekki verið sérstaklega yrt eða nefnt í lögum um háskóla fyrr en með frumvarpi þessu. Námið felur í sér staðlaðar námseiningar og lýtur öllum gæðakröfum sem gerðar eru til náms á háskólastigi. Örnám hefur vaxið hratt í Evrópu á undanförnum árum, ekki síst vegna krafna atvinnulífsins og einstaklinga um hæfni, þróun og endurmenntun í formi styttri námsleiða.

Íslenskir háskólar eru almennt jákvæðir gagnvart örnámi og sjá það sem úrræði sem getur liðkað fyrir tækifærum til háskólanáms fyrir fjölbreytta hópa og stutt háskólastofnanir við að bjóða upp á viðurkennt, stutt og sveigjanlegt nám til sí- og endurmenntunar. Nokkrir íslenskir háskólar bjóða nú þegar upp á örnám, til að mynda Háskólinn á Bifröst, þar sem gæðastjórnun er kennd sem örnám, en aðrir háskólar eru einnig að undirbúa framboð á örnámi þessi misserin eins og sést í umsóknum þeirra í samstarf háskóla.

Þær helstu breytingar sem lagðar eru til með frumvarpinu eru eftirfarandi, ef ég tek þær saman:

1. Lögfest er heimild háskóla til að bjóða upp á nám til námseininga.

2. Yfirlit yfir viðurkenndar prófgráður og lokapróf sem nú er að finna í 7. gr. laganna verði fært í viðmið um æðri menntun og prófgráður sem ráðherra gefur út samkvæmt 5. gr. laganna.

3. Frumvarpið er liður í uppfærslu á gildandi viðmiðum um æðri menntun og prófgráður, samanber auglýsingu nr. 530/2011, en helstu breytingarnar sem felast í uppfærðum viðmiðum eru þær að lágmark ECTS-eininga til diplómaprófs og viðbótarprófs á meistarastigi hækkar úr 30 einingum í 60 einingar, í öðru lagi að kynna og skilgreina nám til ECTS-eininga sem hluta af bakkalár-, meistara- og doktorsnámi og í þriðja lagi að opna á möguleika á veitingu svokallaðs M.Phil.-prófs á doktorsstigi.

4. Háskólum er veitt svigrúm til að aðlaga diplómapróf og viðbótarpróf á meistarastigi til 1. ágúst 2025 og þannig komið til móts við óskir háskólanna þar að lútandi.

Ráðgert er að kostnaðurinn við þróun og framboð á örnámi rúmist innan núverandi fjármögnunarlíkans háskólanna komi þeir ekki til með að taka sérstakt gjald fyrir þátttöku í öðru námi. Því leiðir frumvarpið ekki til aukinna útgjalda fyrir ríkissjóð.

Örnám er mjög nýtt og spennandi tæki sem veitir háskólunum okkar tækifæri til að hreyfa við námsframboði sínu og auka sveigjanleika þess. Vonir standa til þess að það geti hvatt til þess að fjölbreyttur hópur nemenda skrái sig til náms og þannig geti háskólarnir enn betur mætt samfélagslegu hlutverki sínu, til að mynda gagnvart fólki af erlendum uppruna, fólki með fötlun eða aðrar sérþarfir eða til að auka hlut karla í háskólanámi hér á landi.

Virðulegi forseti. Þetta frumvarp er liður í þeim breytingum sem eru eðli máls samkvæmt að verða á menntakerfinu. Fólk sækir ekki lengur í starfsheiti heldur hæfni til framtíðar í þeim heimi sem við búum í í dag og breytist ört.

Virðulegur forseti. Ég hef nú gert grein fyrir meginefni frumvarpsins og legg til að að lokinni þessari umræðu verði því vísað til hv. allsherjar- og menntamálanefndar og 2. umræðu.