154. löggjafarþing — 56. fundur,  22. jan. 2024.

háskólar.

24. mál
[17:45]
Horfa

háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Það hafa komið upp spurningar þegar nemendur hafa heyrt af því að þeirra próf eða þeirra staða sé ekki viðurkennd erlendis, sé ekki sambærileg af því að gráðurnar hér hafa verið styttri. Ég hef samt ekki einhver sérstök dæmi þar sem nemendur hafa lent í miklum vandræðum vegna þessa af því að auðvitað eru skólar erlendis orðnir sveigjanlegri, eru að bjóða upp á styttra nám þannig að þá viðurkenna þeir þetta bara sem slíkt örnám sem er færri einingar. En það má auðvitað óska eftir því að þetta verði metið og hægt að meta saman þá gráður, hálfa gráðu þá núna, með viðbót, sem heila diplómugráðu eða slíkt. Háskólarnir hljóta að koma til móts við það þegar þessi skýra löggjöf um örnám verður orðin að veruleika. Ég trúi ekki öðru en að það séu allir af vilja gerðir til að koma til móts við þá nemendur sem hafa nú þegar púslað ýmsum einingum saman til þess að bæta hæfni sína á ákveðnum sviðum án þess að hafa kannski klárað eða fengið útgefna gráðu vegna þessa, því allt snýst þetta um að bæta við sig ýmiss konar hæfni og hún getur ekki verið verri núna, hvort sem þetta frumvarp er komið í gegn eða ekki.