háskólar.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra fyrir gott svar. Í seinna andsvari mínu langar mig að spyrja hæstv. ráðherra aðeins meira út í örnámið. Eins og hæstv. ráðherra benti á er örnám orðið mjög algeng leið erlendis til að búa til frekari leiðir til að læra hluti, bæði praktíska og ópraktíska. En það er tvennt varðandi þetta. Annars vegar: Hvernig getum við tryggt það að örnám sé ekki bara það sem atvinnuvegirnir eru að krefjast akkúrat núna, eins og t.d. að verða gagnasérfræðingur eða eitthvað slíkt, heldur líka að maður geti tekið örnám í mannfræði eða einhverju sem er kannski ekki alveg eins beintengt atvinnuvegunum núna? Og hinn parturinn af þessu: Hvernig sér hæstv. ráðherra fyrir sér að háskólar geri námið meira sveigjanlegt en það hefur verið með því að leyfa fólki að púsla saman örgráðum upp í t.d. bakkalárpróf eða meistarapróf? Eins og þetta er í dag eru mjög fastar skorður á því hvað þú þarft að taka. Þú þarft að taka ákveðið mikið á einhverju sviði en svo er oft heilmikið um valeiningar. Sér hæstv. ráðherra fyrir sér að þetta örnám geti púslast saman? Það gæti aukið sveigjanleika fólks til að ná sér í háskólagráðu án þess kannski að þurfa að ákveða: Ég ætla að verða mannfræðingur eða ég ætla að verða tölvunarfræðingur.