háskólar.
háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S) (andsvar):
Virðulegi forseti. Þessar hugleiðingar eru mjög vel skiljanlegar. En námsframboð á vegum háskólanna er á þeirra ábyrgð sem sjálfstæðra stofnana og ráðherra skiptir sér ekki af því hvað kemur út úr svona breytingum á háskólastigi. Það er þó auðvitað rétt að það er mjög líklegt að námið verði fjölbreytt og ég sé strax að vilji skólanna, m.a. Bifrastar og Listaháskólans ásamt fleirum, er til að búa til örnám í framleiðslu í skapandi greinum sem hefur t.d. vantað og fer auðvitað inn í þá miklu þróun þar sem t.d. listirnar eru að koma inn í raunvísindin og tæknigreinarnar. Íslenskt menntakerfi með þessu verður bara sveigjanlegra og þarna eru gríðarleg tækifæri fyrir skólana sjálfa til að sjá hvar eru tækifæri á að bjóða upp á annaðhvort hæfni sem nýtist vel í atvinnulífinu og svarar örum samfélagsbreytingum eða á einhverjum öðrum sviðum sem liggur fyrir að áhugi er á hjá nemendum.
Það sem ég myndi segja að væri líka gríðarlega mikilvægt er vinna háskólanna núna við að vinna að því að nemendur geti á meistarastigi blandað saman námi úr mismunandi háskólum á Íslandi. Ég myndi segja að það gæti eflt samkeppnishæfni þeirra verulega og við það hef ég reynt að styðja í samstarfi við háskóla með hvatafjármögnun. Skólarnir hafa sýnt ríkan vilja til þess að vinna betur saman, sérstaklega til þess að nemendur geti haft aukið val og aukinn sveigjanleika. Með þeim sveigjanleika held ég að við séum að svara líka þeim kröfum sem ég heyri víða frá nemendum. En einnig höfum við verið að vinna að því að opna vefsíðuna háskólanám.is þar sem fólk getur borið saman nám og vonandi til framtíðar þá púslað saman sínum eigin námsgráðum með sveigjanlegri hætti en hægt er í dag ef háskólarnir vinna þessa vinnu.