154. löggjafarþing — 56. fundur,  22. jan. 2024.

háskólar.

24. mál
[18:00]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Frú forseti. Það má segja að þetta frumvarp skiptist í tvo hluta. Annars vegar er það um að prófgráðurnar séu færðar til samræmis við það sem gengur og gerist í Evrópu og er það að sjálfsögðu af hinu góða. Þó svo að ég viti að það falli ekki undir hæstv. háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra þá þurfum við líka að aðlaga það hver inntökuskilyrðin eru. Fólk sem kemur frá Bandaríkjunum með „high school diploma“ kemst t.d. inn í Háskólann í Reykjavík en ekki Háskóla Íslands. Þetta er, myndi ég segja, hafandi átt þó nokkur börn sem hafa klárað „high school diploma“ í Bandaríkjunum, jafnvel meira nám en það sem við kennum á menntaskólastigi í dag, þannig að þetta er eitthvað sem ætti að skoða.

Mig langaði að tala aðeins um örnámið og sveigjanlegt nám. Það er nefnilega þannig í dag að námið sem við erum með í boði almennt í skólakerfinu, sérstaklega á háskólastigi, er voðalega fast enn þá í sömu mynd og það var fyrir 50, 100 árum síðan. Það byggir allt á því að þú sért að fara að læra einn hlut sem þú ætlar síðan að vinna við restina af lífinu. Þú verður lögfræðingur eða læknir eða bókmenntafræðingur. Það er reyndar þannig í dag að t.d. í leiðsögumannanáminu í Menntaskólanum í Kópavogi eru ansi margir lögfræðingar og verkfræðingar sem uppgötvuðu að þetta var einfaldlega ekki það sem þá langaði að vinna við þótt þeir kláruðu fimm, sex eða sjö ár í námi. Það segir okkur svolítið að við þurfum að geta fengið að púsla saman og prófa okkur áfram í lífinu en það segir líka að það að hafa mjög breiða þekkingu á mörgum sviðum getur jafnvel verið mun verðmætara heldur en að vera með doktorsgráðu í einu fagi. Hvað ef ég tæki 450 einingar í örnámskeiðum og fengi doktorspróf í staðinn. Já, ég væri ekki sérfræðingur í einum hlut, og kannski allt of mikill sérfræðingur í einum hlut, heldur gæti ég verið sérfræðingur í hundrað hlutum. Kannski læri ég meira af því. Kannski get ég skilað meiru til samfélagsins með svoleiðis bakgrunn.

Ég held að við þurfum einmitt að fara að hugsa út í það að það samfélag sem við búum við í dag er að breytast mjög hratt. Þess vegna er mikilvægt að jafnvel þessar prófgráður sem við erum að endurskipuleggja hér í dag séu svolítið endurhugsaðar, þ.e. hvað liggur á bak við bakkalárpróf. Þegar ég fór í mitt bakkalárnám þá bauðst mér ekki að blanda saman tveimur mismunandi fræðasviðum hér á Íslandi. Mig langaði að blanda saman efnafræði og tölvunarfræði. Það var ekki hægt. Mér stóð til boða að taka 90 eininga nám í tölvunarfræði eða 90 eininga nám í efnafræði. En ég skipti úr Háskóla Íslands yfir í Kaupmannahafnarháskóla af því að þar gat ég tekið bakkalárgráðu í báðum greinum og í rauninni tók ég sirka 50 einingar í hvoru — nú eru þetta orðnar 180 einingar, það voru 50 einingar þá — ég tók sirka 100 einingar í hvoru. Það var hreinlega ekki í boði þá. Ef maður horfir til útlanda þá er byrjað að bjóða miklu meira upp á sveigjanleika í því hvernig þú byggir upp þessar gráður. Þess vegna spurði ég einmitt hæstv. ráðherra hér áðan hvort við gætum t.d. ekki fengið bakkalárpróf eða jafnvel meistarapróf sem samanstæði aðallega af örnámi.

Ég held að við þurfum að fara að hugsa til þess að við þurfum fólk sem kann á ýmislegt — tökum eitthvert dæmi, fólk sem skilur heilbrigðiskerfið af því að það hefur tekið örnámskeið í lýðheilsu og því hvernig heilbrigðiskerfið virkar og er kannski síðan með örnám í gagnameðhöndlun eða eins og það heitir, með leyfi forseta, „data science“, í stað þess að í dag þarftu að taka gráðu tengda heilbrigðismálunum og kannski fá einn áfanga um gagnameðhöndlun. Allt eru þetta leiðir sem við þurfum að hætta að vera föst í, föst í því að svona erum við búin að gera þetta síðastliðin 100 ár.

Við Íslendingar höfum sérstaklega gott tækifæri vegna þess hvað við erum lítil, vegna þess hvað við eigum í rauninni sveigjanlega og góða háskóla ef þeir vilja. Við höfum séð að sumir háskólarnir hafa verið mjög duglegir við að byrja að bjóða upp á nýtt og öðruvísi nám. Sjálfur hef ég komið að því einmitt, eins og hv. þingmaður nefndi hér áðan, að kenna í slíku námi. Það er einmitt mjög gaman að geta tekið sína reynslu og sett hana inn í eitthvert nám sem er ekki fastmótað og þannig að þú þarft endilega að vera með meistaragráðu eða bakkalárgráðu fyrir að hafa tekið akkúrat þetta nám, heldur er þetta nám sem t.d. nýtist þér á vinnumarkaðnum, nú eða jafnvel kannski einhver sem er á leiðinni í að verða doktor í einhverjum vísindum langar einmitt að taka og fara í örnámskeið um hvernig forritun virkar eða örnámskeið um hvernig Afríka er, saga Afríku. Þetta eru allt saman hlutir sem við þurfum að fara að hugsa um hvernig við getum púslað saman.

Það er því miður enn þá í dag allt of lítill sveigjanleiki í því námi sem er í boði. Ég veit að hæstv. ráðherra getur ekki krafið háskólana um hvað þeir kenna en hæstv. ráðherra hefur sýnt að hún kann að nota ýmsa hvata til að fá þá til einmitt að hugsa víðar og betur. Ég held að við værum öll dugleg að styðja slíkt.