154. löggjafarþing — 56. fundur,  22. jan. 2024.

endurnot opinberra upplýsinga.

35. mál
[18:08]
Horfa

háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um endurnot opinberra upplýsinga (mjög verðmæt gagnasett, EES-reglur o.fl.). Frumvarpið innleiðir efnisákvæði tilskipunar (ESB) 2019/1024 um opin gögn og endurnotkun upplýsinga frá hinu opinbera.

Upplýsingar eru meðal mikilvægustu auðlinda upplýsingasamfélagsins og miðlun gagna með ábyrgum hætti er ein af forsendum þjónustu, velsældar og framfara í samfélagi okkar. Mikið magn upplýsinga verður til hjá opinberum aðilum. Það er því mikilvægt að hvetja til miðlunar opinberra upplýsinga með ábyrgum hætti og að unnið sé gegn hindrunum sem koma í veg fyrir hagnýtingu á opinberum gögnum og öðrum þeim upplýsingum sem safnað er á vegum hins opinbera. Þá er mikilvægt er að lagaramminn um notkun gagna sé í samræmi við framfarir í stafrænni tækni og gervigreind og hvetji til nýsköpunar á því sviði.

Hugtakið „endurnot opinberra upplýsinga“ vísar til þess þegar einkaaðili, þ.e. einstaklingur eða lögaðili, hagnýtir upplýsingar frá opinberum aðilum í öðrum tilgangi en lagt var upp með þegar viðkomandi upplýsingunum var safnað. Frumvarpið sem ég mæli fyrir nú stuðlar að frumkvæðisbirtingu og endurnotum opinberra upplýsinga í því skyni að auðvelda hagnýtingu þeirra í þágu samfélagsins.

Frumvarpið styður við markmið stjórnvalda, sem koma m.a. fram í stjórnarsáttmála og gildandi fjármálaáætlun, um greiðara aðgengi almennings að gögnum og um að öll ópersónubundin opinber gögn sem megi birta, séu gerð aðgengileg á stafrænu formi, án endurgjalds.

Lög um endurnot upplýsinga og það frumvarp sem mælt er fyrir nú taka hvorki á upplýsingarétti, þ.e. hvaða upplýsingar eru aðgengilegar almenningi, né hvaða upplýsingum opinberum aðilum ber að afla. Hér er einungis kveðið á um það hvernig einkaaðilar geta endurnotað upplýsingar sem opinberar aðilar hafa þegar aflað og almenningur hefur rétt til aðgangs að. Slík endurnot geta verið til mikilla hagsbóta fyrir samfélag okkar, stuðlað að nýsköpun og auknum hagvexti og leitt til aukinnar samkeppnishæfni á alþjóðlegum vettvangi.

Virðulegi forseti. Þær náttúruhamfarir og sú vá sem við stöndum frammi fyrir um þessar mundir varpa skýru ljósi á mikilvægi þess að gögnum sé ekki aðeins safnað heldur einnig miðlað á skýran hátt og að þau séu nýtt í þágu almennings, hvort sem er af opinberum aðilum eða einkaaðilum. Í því ljósi má nefna sem dæmi þau mikilvægu og verðmætu opinberu gögn sem safnað hefur verið á síðustu þremur árum. Á vef Landmælinga Íslands er að finna svokallaða umbrotasjá. Þar gefst möguleiki á að skoða gögn sem hefur verið safnað í tengslum við eldgosin og jarðhræringarnar á Reykjanesskaga frá árinu 2021. Gögnin voru útbúin af hópi sérfræðinga frá Landmælingum Íslands, Náttúrufræðistofnun Íslands, Háskóla Íslands og Veðurstofu Íslands. Aðgengi að gögnum í umbrotasjánni er opið og gjaldfrjálst og hafa þau þegar verið nýtt af fjölmörgum aðilum í þeim tilgangi að útbúa spálíkön, hættumat og nýtt við stjórnun á aðgengi að svæðinu. Umbrotasjáin er því dæmi um verðmæt gögn sem þegar eru opin og heimilt að endurnota og munu þau án efa nýtast enn frekar til þróunar nýrra lausna þegar fram líða stundir.

Mig langar líka að nefna annað dæmi um hagnýtingu opinna gagna í þágu betri þjónustu og aukinnar hagkvæmni. Í þessu tilviki er um að ræða íslenskt sprotafyrirtæki, Snerpa Power, sem þróað hefur hugbúnaðarlausn til að auka stöðuleika raforkukerfisins, jafna sveiflur og auka nýtni þess rafmagns sem er í boði hverju sinni. Lausnir fyrirtækisins byggja m.a. á nýtingu opinberra gagna til að gera stórnotendum rafmagns auðveldara að sjálfvirknivæða áætlanir um raforkunotkun og bjóða tengingu við raforkumarkað eftir því sem tækifæri gefast. Með bættri nýtingu gagnastrauma og aukinni sjálfvirkni í áætlun geta notendur því lágmarkað frávik í raforkunotkun, tekið aukinn þátt á raforkumarkaði, jafnað sveiflur á markaði og þannig stuðlað að betri nýtingu þeirrar verðmætu orku sem er til staðar hverju sinni.

Hér hafa verið nefnd tvö ólík dæmi um mikilvægi hagnýtingar opinberra gagna í þágu samfélagsins en dæmin eru fleiri og þeim mun án efa fjölga eftir því sem stafrænni tækni vindur fram.

Virðulegi forseti. Helstu nýmæli í frumvarpinu eru í fyrsta lagi þau að sett er heimild fyrir ráðherra til að setja reglugerð um mjög verðmæt gagnasett á sviði landupplýsinga, veðurfræði, hagskýrslna, fyrirtækja og eignarhalds þeirra og hreyfanleika, eins og samgöngunets. Gagnasettin skulu gerð aðgengileg án endurgjalds, á tölvulæsilegu sniði, veitt um forritaskil og með magnniðurhali, þar sem það á við. Fyrirhugað er að innleiða framkvæmdareglugerð (ESB) 2023/138 á grundvelli reglugerðarheimildarinnar, en þar eru þessi gagnasett nánar skilgreind.

Í öðru lagi að kvik gögn, þ.e. gögn á stafrænu formi sem uppfærast ört, svo sem úr skynjurum og mælitækjum, skulu nú vera aðgengileg til endurnotkunar um leið og þeim hefur verið safnað, þegar því verður við komið.

Í þriðja lagi er um að ræða rannsóknargögn sem eru að hluta eða öllu leyti fjármögnuð af hinu opinbera. Skal heimilt að endurnota þau án endurgjalds, hafi þau verið gerð aðgengileg í gegnum gagnasafn stofnunar.

Í fjórða og síðasta lagi er opinberum aðilum heimilt að veita undanþágu frá skyldu til að geta uppruna upplýsinganna við endurnot.

Í frumvarpinu er ekki gengið lengra en lágmarksákvæði tilskipunar ESB um opin gögn og endurnýtingu opinberra upplýsinga segja til um. Frumvarpið felur einungis í sér ákvæði til innleiðingar á tilskipuninni að því undanskildu að opinberum aðilum verður heimilað að veita einkaaðilum undanþágu frá skilyrðum um að geta uppruna upplýsinga. Breytingin felur í sér heimild til að veita slíka undanþágu, en ekki skyldu, og er ekki íþyngjandi fyrir opinbera aðila, fyrirtæki eða einstaklinga heldur þvert á móti ívilnandi.

Opinberir aðilar hafa veitt aðgengi að gögnum sínum í gegnum vefinn www.opingogn.is. Sá vefur er kominn til ára sinna. Samhliða framlagningu þessa frumvarps er ráðgert að farið verði í endurbætur á miðlægri gagnagátt fyrir opin gögn opinberra aðila í samvinnu við Stafrænt Ísland. Gagnagáttin verður hönnuð með notandann í fyrirrúmi með það að markmiði að auðvelda og auka hagnýtingu opinna gagna. Einnig er, í samvinnu við fjármála- og efnahagsráðuneyti, stefnt að mótun heildstæðrar gagnastefnu Íslands sem tekur m.a. til endurnota opinberra gagna. Á grundvelli stefnunnar verður svo sett aðgerðaáætlun til ná markmiðum hennar.

Með frumvarpi þessu eru samræmdar lágmarksreglur Evrópuréttarins um endurnot opinberra upplýsinga uppfærðar með það að markmiði að auka möguleika fyrirtækja, einkaaðila og almennings til hagnýtingar á þeim gögnum. Aukin hagnýting opinberra upplýsinga opnar leið fyrir nýsköpun, sjálfbæran hagvöxt og aukna samkeppnishæfni og stuðlar líka að betri þjónustu og hagsbótum fyrir samfélagið í heild.

Virðulegi forseti. Ég hef nú gert grein fyrir efni frumvarpsins í stórum dráttum og legg til að því verði, að lokinni þessari umræðu, vísað til hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar og 2. umræðu.