154. löggjafarþing — 56. fundur,  22. jan. 2024.

endurnot opinberra upplýsinga.

35. mál
[18:22]
Horfa

háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vona að þetta sé kannski eitt skref á þeirri vegferð að ýta við opinberum stofnunum og stjórnvöldum til að birta meira af gögnum og hafa þau aðgengilegri og auka gagnsæi í þessu. Sjálf gerði ég samning við Ríkiskaup um sparnað í opinberum rekstri til að afhenda frumkvöðlum alls konar áskoranir, hluti sem eru kostnaðarsamir fyrir ríkið og veita þeim aðgengi að gögnum og vandamálum sem upp koma, af því að ég veit að ríkið er ekki best til þess fallið að finna lausnir á alls konar vandamálum eða kostnaði sem fellur til heldur einmitt frumkvöðlar eða fyrirtæki sem hafa áður og kannski oft í samskiptum við aðra aðila sýnt fram á mikinn árangur á sviðum sem ríkið mætti nýta sér. Það að ríkið fari í auknum mæli að opinbera gögn sín til að einkaaðilar geti fundið lausnir og búið til nýsköpunarlausnir fyrir hið opinbera ætti að vera hið jákvæðasta mál sem enginn ætti að geta verið á móti. Samkvæmt tilskipuninni er kveðið á um skyldu til að setja stefnu um opið aðgengi eða opin vísindi, sem við þurfum að vinna núna í kjölfar þessa lagafrumvarps. Og það er alveg rétt að þessi síða er komin til ára sinna og er ekki mikið nýtt. Hún er líka kannski þannig uppsett að hún er hvorki aðgengileg fyrir þá sem sækja þar gögn né þá sem þurfa að setja þangað inn gögn. Þarna þurfa stjórnvöld að gera betur og ríkið getur gert betur. Það má auðvitað benda á opnirreikningar.is, sem var líka tilraun til að auka gagnsæi gagnvart þeim kostnaðarliðum sem falla til. En markmiðið með nýju gáttinni, sem við ætlum að vinna með Stafrænu Íslandi, er að auðvelda hinu opinbera að gera þessi gögn aðgengileg sem og að auðvelda notkunina. (Forseti hringir.) Það átti sér stað mikið samtal í aðdraganda frumvarpsins við aðila, ráðuneyti og stofnanir og við munum halda áfram að ýta á þetta og þetta er fyrsta skrefið.