endurnot opinberra upplýsinga.
háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S) (andsvar):
Virðulegur forseti. Þetta frumvarp er einhvers konar regnhlíf yfir þau gögn sem nú þegar eru birt, yfir það hvernig þau eru birt og hvernig við ýtum undir að þau séu birt og séu aðgengileg. Við setjum eins konar regnhlíf yfir það hvernig við viljum að aðilar geti nýtt sér gögnin og hvernig þau séu sett fram. Ég býst við að háskólar falli undir þetta þar sem rannsóknargögnin eru skilgreind með þeim hætti að þau eru fjármögnuð af hinu opinbera sem rannsóknir háskólanna eru. Þar liggja gríðarleg tækifæri fyrir háskólana sjálfa sem og auðvitað frumkvöðla. En á sama tíma verður að gæta að því að við sækjum um einkaleyfi, sem kemur fram í stefnu um þekkingarsamfélag sem var samþykkt hér fyrir jól, við þurfum líka að gera gangskör í því að sækja um einkaleyfi og gæta að þeim þætti og þeirri hlið málsins, svo ég nefni það svona aukalega. En rannsóknarstyrkirnir eru þarna undir og eru opinbert fjármagn þannig að háskólarnir falla hér undir. En ég tek undir með hv. þingmanni um þau tækifæri sem felast í að setja skýr markmið og reglur um þetta. Ég bæti því kannski við þar sem ég kom því ekki að áðan og ítreka að ráðuneyti háskóla, iðnaðar og nýsköpunar er að fara í ásamt fjármála- og efnahagsráðuneytinu í þessa gagnastefnu sem mun líka ýta við þessu og gera það gagnsærra og sambærilegra hvaða gögn skal birta. Það er of mikið um það að gögn séu vistuð á mjög mismunandi hátt með mjög mismunandi aðgangi að þeim og fleira. Aðgangurinn að kyngreindu upplýsingunum er auðvitað til þess fallinn að auka jafnrétti og aukinn aðgangur að opinberum gögnum ætti að hafa það í för með sér að slík gögn verði birt, séu þau til og séu af þeirri gerð gagna sem er verið að birta. (Forseti hringir.) Ég myndi telja að aukinn aðgangur að gögnum eins og þetta frumvarp felur í sér sé hjálpi einungis til við að auka gagnsæi í því hvernig gögn og rannsóknir eða annað falla að jafnréttismálum í heild sinni.