154. löggjafarþing — 56. fundur,  22. jan. 2024.

fullgilding fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Moldóvu.

558. mál
[18:46]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Það er ástæða til að fagna fram kominni tillögu hæstv. utanríkisráðherra um að við fullgildum fríverslunarsamning við Moldóvu. Þótt viðskipti milli Íslands og Moldóvu séu enn þá ekki mikil vonumst við til þess að gagnkvæm niðurfelling og lækkun tolla skapi forsendur fyrir auknum viðskiptum en til þess er einmitt leikurinn gerður eins og hæstv. utanríkisráðherra minntist hér á. Það er auðvitað jákvætt að EFTA-ríkin haldi áfram að þétta fríverslunarnet sitt en sömuleiðis hafa önnur markmið sem samningarnir innibera jákvæð áhrif, eins og áhersla á jafnrétti, lýðræði, réttarreglur og önnur mannréttindi og frelsi.

Sérstakt tilefni er til að fagna þeim táknræna stuðningi við Moldóvu sem fríverslunarsamningurinn felur í sér. Stjórnvöld í Moldóvu hafa, eins og hæstv. utanríkisráðherra kom inn á, í auknum mæli horft til Vesturlanda um samvinnu og samstarf en Evrópusambandið samþykkti nýlega að bjóða þeim að hefja aðildarviðræður við sambandið. Moldóva er eitt fátækasta land í Evrópu en landið hefur samt tekið á móti gríðarlegum fjölda flóttamanna frá Úkraínu, mest allra miðað við höfðatölu. Það er því sérstaklega ánægjulegt að við séum hér að opna faðminn fyrir frekari samvinnu og samskiptum við Moldóvu og ég hlakka til umfjöllunarinnar og vinnunnar í utanríkismálanefnd.