154. löggjafarþing — 56. fundur,  22. jan. 2024.

framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2024--2027.

584. mál
[19:03]
Horfa

Magnús Árni Skjöld Magnússon (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir þetta mál sem augljóslega er vel undirbúið og vel unnið og löngu orðið tímabært að ráðast í þessa vinnu því að eftir henni hefur verið kallað lengi og það er ánægjulegt að sjá eitthvað hreyfast í þeim efnum núna. En ég sá að það er í þessu plaggi talað um ákveðið mál sem ég hef sérstakan áhuga á, sem er inngilding fatlaðra einstaklinga í námi og þá kannski sérstaklega í háskólanámi. Nú er það svo að fatlað fólk á rétt á að sjá fyrirmyndir úr þeirra hópi á öllum vettvangi samfélagsins og kannski ekki síst á sviði, í sviðslistum. Ég þekki til þess vegna þess að ég hef sem háskólakennari verið leiðbeinandi í verkefni nemanda sem vann verkefni um inngildingu í listnámi og komst að þeirri niðurstöðu að þrátt fyrir góðan vilja bæði stofnananna sem eru undir hatti bæði sveitarfélaga og ríkis og svo þess háskóla sem sinnir listnámi hér á Íslandi þá sé þröskuldurinn ávallt sá að það skorti fé til þess að innleiða þessa inngildingaráætlun. Þess vegna langar mig að spyrja hæstv. ráðherra hvort í þessari áætlun sé gert ráð fyrir því að tryggja fé í slíka hluti.