154. löggjafarþing — 56. fundur,  22. jan. 2024.

framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2024--2027.

584. mál
[19:05]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið. Ég deili áhuga hans og ástríðu gagnvart námi fatlaðs fólks og tækifærum fatlaðs fólks til að stunda nám vegna þess að það er ekki jafnt á við ófatlað fólk. Þannig er bara staðan í dag. Þess vegna setti ég í gang samráð og samstarf við hina menntamálaráðherrana, því að ég er með menntamál undir minni könnu líka, þ.e. framhaldsfræðsluna, og úr því urðu til allmargar tillögur sem sérstakur starfshópur skilaði og hafa skilað sér inn í þetta. Ég vek athygli hv. þingmanns á aðgerð D.6 um aukið framboð og aðgengi að hagnýtum áföngum á háskólastigi en þar segir í greinargerð að það séu bundnar vonir við að „nýtt fjármögnunarlíkan, árangursmiðuð fjármögnun háskóla, muni styðja við aukið námsframboð í háskóla fyrir fatlaða nemendur. Framlög til háskóla fyrir sókn í þágu háskóla og samfélags verða þannig bundin markmiðum í frammistöðusamningum um aukin tækifæri fatlaðs fólks til háskólanáms með framboði heildstæðra og styttri námsleiða, án aðgangshindrana“, eins og stendur, með leyfi forseta, hér í greinargerðinni.

Ég bind þess vegna vonir við að það verði hægt að fjármagna betur en verið hefur í rauninni oft og tíðum aðstoð hreinlega sem þarf við fatlað fólk inni í háskólakerfinu. Ég hef stundum orðað þetta þannig almennt séð þegar við erum að tala um fatlað fólk að við getum litið á þetta bara svolítið þannig að þegar við lærðum að hjóla þá þurftum við að nota hjálpardekk og sum okkar þurfa bara að nota þau aðeins lengur og það er bara ekkert að því.