154. löggjafarþing — 57. fundur, 23. jan. 2024.
varamenn taka þingsæti.
Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs um að Svandís Svavarsdóttir, 2. þm. Reykv. s., geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista flokksins í kjördæminu, Brynhildur Björnsdóttir. Brynhildur Björnsdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa að nýju.