154. löggjafarþing — 57. fundur,  23. jan. 2024.

Störf þingsins.

[13:44]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Frú forseti. Það var mikilvægt að koma Íslandi af gráum lista FATF, eða Financial Action Task Force, sem tókst haustið 2020, en þar eru ríki sem sæta auknu eftirliti vegna ófullnægjandi varna gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Nú nokkrum árum síðar má hins vegar spyrja hvort við höfum gengið of langt, annaðhvort með lögum og reglugerðum eða með túlkun. Ég geri sannarlega ekki athugasemdir við auknar kröfur um upplýsingagjöf frá stjórnmálamönnum og öðrum í opinberum valdastöðum né heldur að ákveðnar kröfur séu gerðar til náinna fjölskyldumeðlima vegna stjórnmálalegra tengsla, en við göngum lengra. Skráning raunverulegra eigenda var eitt skilyrði þess að komast af gráa listanum. Í þeim lögum eru stjórnarmeðlimir félagasamtaka, þar sem eigendur eru ekki sérstaklega tilgreindir, skráðir sem raunverulegir eigendur. Ef í slíkri stjórn eru einstaklingar með stjórnmálaleg tengsl, annaðhvort sjálfir eða í gegnum fjölskyldu, þá er fjandinn laus, eða með öðrum orðum absúrd krafa gerð um upplýsingagjöf allra stjórnarmeðlima, enda þau öll komin á lista yfir tilkynningarskylda aðila.

Svo er það auðvitað ljóst að seta á svona lista getur sett fólki alvarlegar skorður í raunverulegum störfum sínum vegna þess að við erum jú að tala hér um afleiðingar af sjálfboðaliðastarfi í félagasamtökum. Þetta setur í raun og veru félagafrelsi og atvinnufrelsi fólks skorður, leyfi ég mér að segja, að ég tali ekki um persónuverndina. Ég nefni sem dæmi um af hverju þessi staða er eins og hún er að í Evrópulöggjöfinni er gerður greinarmunur á stjórnmálafólki, á fjölskyldum stjórnmálafólks og síðan á samstarfsaðilum, þar með talið þeim sem slysast til að sitja í stjórn félagasamtaka í sjálfboðavinnu með einhverjum með slík tengsl. En hér á landi, í íslenskri löggjöf, gilda allar reglur jafnt yfir þessa þrjá flokka og þar má spyrja: Af hverju? Er það til að gera okkur hér sem setjum lögin eða embættismönnunum lífið einfaldara? (Forseti hringir.) Það er sannarlega ekki til að einfalda líf fólks og það hlýtur jú að þurfa að vera okkar hlutverk líka. (Forseti hringir.) Við hljótum að geta barist gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka með aðeins minna íþyngjandi hætti fyrir fólkið í landinu.