Störf þingsins.
Frú forseti. Athygli okkar þingmanna er oft með ýmsum hætti og dreift yfir hin ýmsu mismunandi verkefni. Við vitum t.d. öll að dagskrá þessarar viku mun líta aðeins öðruvísi út eftir að boðuð tillaga var skiljanlega og með sóma tekin af dagskrá með tíðindum gærdagsins. Ég veit að við vorum öll slegin yfir þeim tíðindum og ég vil fá að nota þetta formlega tækifæri hér og færa hæstv. matvælaráðherra allra bestu batakveðjur frá þingflokki Sjálfstæðisflokksins. Við vitum að hún mun fara í gegnum þetta allt saman og mæta og gera okkur lífið leitt von bráðar. Ég nefni þetta þar sem það er þannig að verkefni og skyldur okkar eru bara með þeim hætti að við verðum að veita þeim fulla athygli okkar. Það er allt frá því að aðstoða Grindvíkinga, sem ég veit að við erum öll sammála um, til þess að þurfa að horfa til þess hvernig samspil ríkisútgjalda verður við farsæla kjarasamninga og hvernig ríkisfjármálin spila við peningastefnuna svo að við náum utan um verðbólguna og getum lækkað vexti. Þar erum við öll saman í liði og eigum allt okkar undir. Þetta eru verkefnin. Ég nefni þetta hér því að ég heyrði ræðu t.d. hv. þm. Sigmars Guðmundssonar hérna áðan, sem eyddi miklu púðri í að segja að ríkisstjórnin hefði ekki afl til þess að gera eitt eða neitt. Ég verð bara að fá að standa hér og segja að ég hafna því alfarið. Hann vísaði í sinni ræðu til gærdagsins og ég held að hann hafi verið að vísa í þá tillögu sem var dregin til baka. En ég ætla hins vegar einmitt að vísa til gærdagsins og sýna fram á að þær aðgerðir sem þar voru kynntar á þeim skamma tíma sem hefur liðið frá því sem gerst hefur í Grindavík sýna með óyggjandi hætti (Forseti hringir.) að þessi ríkisstjórn er með athyglina þar sem hún þarf að vera, klárar þau verkefni sem hún þarf að vinna og gerir það með sóma.