154. löggjafarþing — 57. fundur,  23. jan. 2024.

Störf þingsins.

[14:01]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Frú forseti. Hér koma hv. stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar upp hver af öðrum að telja sjálfum sér trú um eða sannfæra sjálfa sig um að allt sé í sóma í stjórnarsamstarfinu. Allir sem fylgjast með íslenskri pólitík og hafa fylgst með atburðum undanfarinna vikna, mánaða og missera sjá það að þessu stjórnarsamstarfi er lokið. Nú á sér stað einhver mesta störukeppni sem fram hefur farið í pólitík á Íslandi um langan tíma. Þessi ríkisstjórn var víst stofnuð til að brúa bilin í samfélaginu, leita sáttaleiða, koma í veg fyrir skautun í stjórnmálaumræðunni og skapa stöðugleika í efnahagslífinu. Það verður ekki sagt að það hafi tekist og öll þessi markmið virðast fokin út í buskann.

Fyrir helgi skrifaði hæstv. utanríkisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins sig út úr ábyrgri og lýðræðislegri umræðu um málefni útlendinga hér á landi með ósmekklegri samsuðu útlendingaandúðar og hræðsluáróðurs. Þar fór nú fyrir lítið málflutningur forsætisráðherrans um að þetta stjórnarsamstarf, einmitt þetta stjórnarsamstarf, komi í veg fyrir skautun í almennri umræðu á Íslandi þegar skautunin á sér stað á milli stjórnarflokkanna þriggja, að því er ég fæ best séð. Við verðum að horfast í augu við það hér á hinu háa Alþingi að þau verkefni sem hér blasa við okkur, m.a. vegna Grindavíkur og efnahagsástandsins í samfélaginu, kalla á samvinnu allra flokka hér á hinu háa Alþingi. Meiri hluti og minni hluti verða að vinna saman. Stjórnarmeirihlutinn getur ekki starfað þannig að hann komi til stjórnarandstöðunnar og leggi á borðið einhverjar hugmyndir og ætlist til þess að þær séu blessaðar af því að ástandið sé erfitt. Þetta kallar á alvörusamvinnu, alvörulausnir og alvörupólitík. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)