154. löggjafarþing — 57. fundur,  23. jan. 2024.

Störf þingsins.

[14:03]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Þúsundir heimila á Íslandi eru að sligast undan vaxtabyrði Seðlabankans og ljóst að margir munu ekki standast þetta áhlaup á meðan aðrir, þó að þeir nái að halda heimili sínu, munu standa veikar að vígi mörg næstu ár og jafnvel aldrei ná vopnum sínum á ný. Já, ég kalla þetta áhlaup og árásir, því að eins og fjármálaráðherrum þessarar ríkisstjórnar er svo tamt að segja þá er sömu krónunum ekki eytt tvisvar.

Nú þurfa heimilin að afhenda krónurnar sem þau vinna fyrir hörðum höndum beint til bankanna í bílförmum. Þeim er þannig ekki eytt í mat, tómstundir fyrir börn, læknisþjónustu eða nokkuð annað sem skiptir fólk máli í lífinu. Bankarnir geta hins vegar eytt þessum krónum fólksins í landinu eins og þá lystir. Inn í þetta ástand kemur breiðfylking verkalýðsfélaganna með boð um samning; samning sem felur í sér tiltölulega litlar launahækkanir en mun þó skila meiri pening í launaumslagið. Þannig þurfa stjórnvöld, þ.e. þessi veruleikafirrta ríkisstjórn sem nú er við völd, að leggja til um 25 milljarða í tilfærslukerfin til að bæta fólkinu í landinu upp nokkrar af þeim fjölmörgu krónum sem því er gert með valdboði að greiða til bankanna. 25 milljarðar eru ekki mikið í samanburði við alls kyns útgjöld sem stjórnvöld hafa farið í, t.d. í Covid-faraldrinum eða eftir hrun, þegar mikið hærri upphæðum en þetta var beint til fyrirtækja. Og þar stendur hnífurinn væntanlega í kúnni. Þessi skelfilega ríkisstjórn er nefnilega alltaf tilbúin til að hlusta á umkvartanir stórfyrirtækja en lokar algerlega eyrunum fyrir neyðarópi illa staddra heimila.

Síðan gerir breiðfylkingin m.a. kröfu um lækkun vaxta. Þó að það sé erfitt að ímynda sér það er veruleikafirringin jafnvel enn meiri í Seðlabankanum en hjá ríkisstjórninni. Þar virðast vaxtalækkanir hljóma eins og einhvers konar föðurlandssvik á meðan þessu er einmitt þveröfugt farið. Já, það er vægast sagt dapurlegt, svo notuð séu orð formanns VR, ef ríkisstjórnin ætlar að nota Grindavík sem afsökun fyrir því að hleypa öllu í bál og brand á íslenskum vinnumarkaði. Ríkisstjórn Íslands á að vinna fyrir fólkið í landinu, ekki bankana og ekki Samtök atvinnulífsins, og það er löngu kominn tími til að hún átti sig á því.