154. löggjafarþing — 57. fundur,  23. jan. 2024.

Störf þingsins.

[14:05]
Horfa

Brynhildur Björnsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Í dag er hálf öld og einu ári betur síðan framtíð Vestmannaeyinga kollvarpaðist á einni nóttu. Eins og þar og þá stendur samfélagið í Grindavík frammi fyrir því að forsendur framtíðarinnar eru að bresta. Húsin standa yfirgefin, skólar eru tómir, vinnustaðurinn er lokaður, félagslíf tætt. Tómstundir, róluvöllurinn, göngustígurinn, garðurinn, heimilið — öllu var kippt undan fótunum í einu vetfangi, bókstaflega.

Íslendingar þekkja vel til náttúruhamfara. Við höfum upplifað eldsumbrot, skriðuföll, snjóflóð, sjávarháska og jarðskjálfta. Hér hefur byggst upp harðgert og traust samfélag þar sem samkenndin er grunnstilling. Það þarf ekki mikið til að öll óeining sé lögð til hliðar þegar þörf er á og samfélagið leggist allt á eitt óháð efnahag, stétt eða stöðu til að hlúa hvert að öðru og leysa sameiginlega þau verkefni sem að steðja. Sterkt samfélag er ekki bara landfræðileg staðsetning húsa. Samfélag er sameiginleg hugmynd um hagsmuni, um jöfnuð og systkinalag, sameiginlega sjóði sem ráðstafað er til verkefna sem gagnast öllum og sameiginlega framtíðarsýn. Samfélagsvitund og samkennd er verðmætt afl. Framtíð Grindavíkur er samfélagslegt verkefni allra á Íslandi og þannig hefur ríkisstjórnin nálgast verkefnin. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar hafa frá byrjun einkennst af virðingu fyrir vilja Grindvíkinga og verið metnar út frá samtölum við íbúana fyrst og fremst. Við virkjum þessa kosti samfélagsins til að ná bestu niðurstöðunni fyrir sem flesta. Það er mikilvægt að íbúar Grindavíkur, eins og íbúar Vestmannaeyja á sínum tíma, fái tíma, þolinmæði og áframhaldandi stuðning. Ríkisstjórnin ætlar að gefa Grindvíkingum færi á skjóli á meðan þau þurfa að taka afdrifaríkar ákvarðanir um framtíð sína.