Orkumál.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að hefja þessa umræðu. Hv. þm. Ingibjörg Isaksen hefur sýnt þessum málaflokki mjög mikinn áhuga sem er mjög mikilvægt og ég vona að aðrir séu á sama stað. Ég verð að viðurkenna að það hefur komið mér á óvart þegar menn hafa verið að nota tækifærið núna og einhvern veginn átta sig á stöðu mála þegar kemur að orkumálum okkar Íslendinga. Kannski hefði verið betra ef það hefði verið minna í lónunum ári fyrr því að það er búið að benda á þetta hvað eftir annað án þess að í það minnsta hv. þingmenn, margir hverjir, hafi áttað sig á því.
Hv. þingmaður spyr: Hvað þarf mikið og hvað erum við að gera? Eitt það fyrsta sem ég gerði sem ráðherra þegar ég kom þar inn, þegar ég áttaði mig á þeirri stöðu að við Íslendingar erum eina þjóðin í heiminum sem taldi að það væri hægt að ná loftslagsmarkmiðunum án þess að fara í græna orkuöflun, því að þannig var það, þá setti ég af stað vinnu, svokallaða grænbók, þar sem var skoðað hvað þyrfti mikla orku til að fara í orkuskiptin. Niðurstaðan var sú að það þarf nokkurn veginn að tvöfalda þetta. En menn eru bara að tala um raforkuna. Það er langt síðan ég kom fram með skýrslu um hitaveituna. Hvenær ætla menn að vakna við það að tveir þriðju hlutar hitaveitna á Íslandi, tveir þriðju, eru í vandræðum? Ég verð rosaglaður þegar menn verða búnir að vakna en það hefði verið betra ef menn hefðu gert það aðeins fyrr. Ef við gerum ekkert í 15 ár í raforkumálum og í 20 ár í hitaveitumálum þá lendum við í vandræðum. Það er ekkert flókið.
Ef við ætlum að auka orkuframleiðslu þá er fernt sem þarf að gera. 1. Það þarf leyfi til að nýta virkjunarkosti og það leyfi fæst með afgreiðslu rammaáætlunar. 2. Orkufyrirtæki verða að fara í framkvæmdir eða undirbúa framkvæmdir. 3. Leyfisveitingaferli og opinberar stofnanir verða að vera skilvirk. 4. Sveitarfélögin verða að klára þá vinnu sem snýr að þeim, skipulagsvinnu og leyfisveitingar. Það sem að okkur hefur snúið, nr. 1 og 3, höfum við unnið samfleytt að frá því að við komum inn. Sem betur fer kláruðum við rammaáætlun í fyrsta skipti í níu ár. Það var enginn þingmaður stjórnarandstöðunnar sem greiddi atkvæði með því, enginn. Með öðrum orðum: Við ættum enga von ef þeir hefðu náð sínu fram, enga. Enginn þingmaður stjórnarandstöðunnar greiddi atkvæði með rammaáætlun.
Við fórum í aflaukningarfrumvarpið sem er langmesta einföldun á sviði grænnar raforkuframleiðslu sem hefur sést og nú eru 300 MW í pípunum þar. Við erum búin að efla Orkusjóð. Við fórum í jarðhitaátak vegna þess að við höfum ekkert verið að leita að heitu vatni. Við höfum sett að meðaltali 2 milljarða í niðurgreiðslu á húshitun á hverju ári án þess að leita að heitu vatni og það er úti um allt land. Þetta er fyrsta jarðhitaátakið á þessari öld og er strax farið að bera árangur. Við komum með orkusparnaðarfrumvarp, varmadælufrumvarpið sem nú þegar er búið að ná þeirri niðurstöðu að það er búið að spara sem samsvarar 50.000 rafbílum. Suðurnesjalína 2 er komin af stað eða stutt í það. Sömuleiðis lítur betur út með Blöndulínu og við gerum ráð fyrir því að tenging frá Eyjafirði yfir í Grundartanga verði tilbúin 2027.
Nú fyrir þinginu liggur fyrir frumvarp um hagnýtingu vindorku, eða það kemur núna á næstu vikum og er mikilvægt að þingmenn klári mál eins og sameiningar stofnana því að við náum ekki árangri nema með því að sameina stofnanir. Ég vil nota tækifærið hér og lýsa yfir vonbrigðum með hversu hægt þingið hefur unnið í þeim málum. Það þýðir ekki að koma með skýrslu eftir skýrslu eftir skýrslu um mikilvægi þess að vera með stærri stofnanir og síðan koma allir smákóngar heimsins þegar á hólminn er komið og segja: Ekki hjá mér, ekki hjá mér. Ég vonast til þess að það verði ekki niðurstaðan núna.
Ég fæ að tala fyrir öðru frumvarpinu núna á eftir en hitt kemur hingað vonandi fljótlega sem er komið inn í þingflokka. En það litla frumvarp sem kom inn í þingið 10. nóvember — 10. nóvember— með fjórar umsagnir, allar jákvæðar, það náðist ekki að klára það fyrir jól. Við erum núna komin með leyfi til reksturs raforkumarkaðar. Það er mjög ánægjulegt að sjá hvernig Ölfus og Orkuveita Reykjavíkur eru búin að taka við sér. Auðvitað hefði Orkuveita Reykjavíkur átti að gera það fyrir tíu árum síðan en núna með nýrri forystu þá erum við að sjá að þetta mikilvæga fyrirtæki er loksins farið af stað.
Við erum komin með mælaborð varðandi virkjunarkosti. Við erum farin af stað með endurskoðun rammaáætlunar og átaksverkefni í einföldun á leyfisveitingaferlum. Orkuöryggismálið er nokkuð sem við þurfum sömuleiðis að klára, það hefði átt að klárast 2003 en við getum rætt það betur á eftir. (Forseti hringir.)
Ég er alls ekki búinn að tæma það sem hefur verið gert og það sem við erum á leiðinni að gera en fagna umræðunni og mun draga á yfirlýsingar þingmanna sem hafa kallað eftir aðgerðum í orkumálum. Ég mun draga á það. Ég treysti því að þingið muni vinna skilvirkt og almennilega til að ná árangri — þótt fyrr hefði verið.