154. löggjafarþing — 57. fundur,  23. jan. 2024.

Orkumál.

[14:22]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Það er hlutverk ríkisins að tryggja næga raforku. Ég man ekki eftir því á minni lífstíð að áður hafi blasað við raforkuskortur á Íslandi. Ríkinu hefur misfarist þetta verkefni með alvarlegum hætti. Það fer reyndar tvennum sögum af því hvort verið sé að nýta stóran hluta raforkunnar til einhvers konar uppgraftar á rafmyntum og umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra þarf að veita skýr svör um hvort svo sé. Eigi slíkt sér stað ætti því að sjálfsögðu vera sjálfhætt. Heimilin eiga alltaf að njóta forgangs sé einhver skortur á raforku og það má aldrei gleymast að íslenskur almenningur byggði upp raforkukerfið hringinn í kringum landið og greiddi fyrir þá uppbyggingu með hag þjóðarinnar og framtíðarkynslóða í huga. Okkur ber að hugsa vel um arfinn, virkjanirnar og dreifikerfið, og gæta þess að þessir þjóðarinnviðir falli aldrei á fárra hendur. Það má aldrei gerast að einhverjir útvaldir fái að hagnast á þessari þjóðarauðlind.

Vegna þessarar sameiginlegu hugsjónar þjóðarinnar voru sveitarfélögin sem orkan kemur frá tilbúin til að gefa margt eftir svo orkuvæða mætti landið og gerðu ekki kröfur um hagnað af orkuframleiðslunni. Á undanförnum árum hefur það hins vegar gerst að hinir og þessir milliliðir eru farnir að hagnast á orkunni sem kemur frá þessum sveitarfélögum á meðan hlutur sveitarfélaganna er verulega rýr. Það er meira að segja þannig að beint tap eins helsta orkusveitarfélags landsins, Skeiða- og Gnúpverjahrepps, af orkuvinnslu þar í sveit nam heilum 45 milljónum árið 2022. Það er tap upp á 75.000 kr. fyrir hvern íbúa, sem samsvarar því að Reykjavíkurborg myndi tapa 10 milljörðum á orkuvinnslu. Það er því ekki nema von að þessi sveitarfélög krefjist breytinga á kerfinu og vilji ganga til samninga við ríkið og Landsvirkjun um jafnari skiptingu ágóðans sem vissulega er fyrir hendi.

Fram undan eru stórar áskoranir og þörf er á fleiri virkjunum og bættu dreifikerfi til að tryggja raforkuöryggi þjóðarinnar. Það er því mikið undir og ríkisstjórninni ber að ganga af heilindum til samninga við orkusveitarfélögin og takast á við verkefni framtíðarinnar í sátt við þau.