Orkumál.
Frú forseti. Ég þakka hv. málshefjanda fyrir þessa mikilvægu umræðu. Ég verð nú samt að byrja á því að mig rak í rogastans undir ræðu hæstv. orkumálaráðherra þegar hann tilkynnti hér í pontu að ég hefði ekki greitt atkvæði með rammaáætlun 15. júní 2022. Það gerði ég svo sannarlega, þannig að ég bara bið hæstv. ráðherra að vinna rannsóknarvinnuna sína betur, enda veit ég ekki um nokkurn hér á þingi sem myndi láta sér detta það til hugar að ég myndi ekki greiða atkvæði með máli eins og þessu. Þetta er frá þinginu, ég veit ekki hvað þú hefur, hæstv. ráðherra, en hér er lokaafgreiðsla málsins og þar segir — ekki nema það hafi verið alnafni minn sem skaust inn á þing sem varamaður þennan sama dag en ég held ekki. En ég hef veitt því athygli svo sem að það var fulltrúi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs sem greiddi atkvæði á móti málinu eins og það lá fyrir þarna í lokaafgreiðslu en látum það nú liggja á milli hluta nú um stundir.
Hér höfum við um nokkra hríð, ég fyrir hönd Miðflokksins og formaður Viðreisnar, hv. þm. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, fyrir hönd Viðreisnar og daginn eftir tók Samfylkingin undir, lýst yfir stuðningi við aðgerðir sem til gagns geta verið. Af því að ég sé þingflokksformann Flokks fólksins hér fyrir framan þá mig minnir mig að flokkurinn hafi stigið á sama vagn um svipað leyti. Það skiptir máli að hæstv. ráðherra hagi sínum málum með þeim hætti að gagn geti orðið af. Það er auðvitað val Sjálfstæðisflokksins að vinna með Vinstrihreyfingunni – grænu framboði, sem við þekkjum hversu áhugasöm er um frekari orkuöflun. Á því vali verður Sjálfstæðisflokkurinn að bera fulla ábyrgð en á bak við þær yfirlýsingar sem hér voru gefnar fyrir áramót eru full heilindi og ég bara hvet hæstv. orkumálaráðherra til að hantera þær ekki með einhverjum hreytingum hér úr ræðustóli.