154. löggjafarþing — 57. fundur,  23. jan. 2024.

Orkumál.

[14:38]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Frú forseti. Við erum mörg sem trúum því að í þágu orkuskipta og almennra lífsgæða verðum við að afla meiri orku til framtíðar þótt við getum og eigum auðvitað að deila um í hve miklum mæli og hvernig við gerum það. Með orkuöflun, þar sem oftar en ekki er verið að fórna öðrum verðmætum, er nauðsynlegt að fara varlega og leita eins breiðrar sáttar og mögulegt er. Þess vegna höfum við rammaáætlun. En um leið og við eigum að grundvalla orkuöflun á rammaáætlun verðum við líka að tryggja að kostir sem raðað er í virkjunarflokk fái eðlilegan framgang án ómálefnalegs flækjustigs eftir að þeir hafa komist þangað. Þess vegna er áhugavert að skoða nýleg tilmæli innan Evrópusambandsins um endurnýjanlega orku þar sem það er markmið að hraða leyfisveitingaferli fyrir slíka orkuöflun og að framkvæmdir í þágu brýnna almannahagsmuna njóti forgangs, enda byggi þeir á grunni endurnýjaðrar orkuöflunar. Þá þarf endurskoðun rammaáætlunar sífellt að vera í gangi, enda tekur veruleiki okkar stöðugum breytingum. Þannig segir t.d. í nýlegri umsögn Landsvirkjunar um endurmat á nokkrum virkjunarkostum rammaáætlunar að fimm af tíu virkjunarkostum í jarðvarma sem eru í nýtingarflokki séu á eldvirkum svæðum á Reykjanesi og þetta sé verulegur hluti af afli og orkugetu nýtingarflokks núverandi rammaáætlunar. Landsvirkjun bendir á að þessi nýja staða minni á nauðsyn þess að dreifa orkuinnviðum um allt landið.

Þá er rétt að koma að síðasta punktinum. Við verðum einfaldlega að vinna miklu harðar að því að bæta flutningskerfið okkar. Það er bæði spurning um nýtingu og almannaöryggi. Loks eykur það jöfnuð og samkeppnisstöðu þvert á landshluta að öll fyrirtæki landsins, hvar sem þau eru staðsett, geti framleitt vörur sínar með grænum hætti og aukið þannig verðmæti þeirra. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)