Orkumál.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. málshefjanda og hæstv. ráðherra fyrir þessa umræðu og tek undir það að hún er bæði nauðsynleg og skemmtileg. Það verður seint sagt annað en að það sé stuð þegar verið er að ræða þessi mál hér í þingsal og ljóst að við erum ekki að segja okkar síðasta í þessu þar sem þessi umræða fer vaxandi í samfélaginu og eru fyrirheit um frumvörp og annað sem er á leiðinni inn í þingið. Við þurfum því að ræða okkur áfram með það og er það kannski útgangspunkturinn þegar við erum að koma okkur niður á það með hvaða hætti við ætlum að nýta þau gæði sem við búum yfir. Við erum rík af þessum gæðum og þar þarf að gæta jafnvægis.
Hér hefur verið komið inn á rammaáætlun, svokallaða verndar- og orkunýtingaráætlun, og það er með vilja sem ég hægi á mér þegar ég segi „verndar-“ vegna þess að það er hinn helmingurinn ef við viljum horfa á þetta sem tvískipta arma. Það er akkúrat hinn helmingurinn af löggjöfinni, að horfa til verndar annars vegar og nýtingar hins vegar. Hér höfum við sammælst um að leggja áherslu á að tryggja að orkan gangi upp í það að mæta okkar skuldbindingum í þágu loftslagsmála. Þá skulum við heldur ekki gleyma því að ástæðan fyrir því að þjóðir heims eru komnar á þennan stað sem þær eru á er vegna þess hvernig þær hafa gengið gegndarlaust á gæðin. Það getur því ekki verið lógískt í öllu samhengi að ganga bara áfram gegndarlaust á gæðin án þess að við tryggjum að gæta einhvers jafnvægis í upplegginu. Ég minni þess vegna á mikilvægi verndarþáttarins í þessu samhengi. Þar er ágætt að minna á, og ég nota hvert einasta tækifæri í þessari umræðu til að minna á það, að á Íslandi eru síðustu 43% af ósnortnum víðernum allrar Evrópu. Það eru nú aldeilis gæði. Við þurfum að horfa til verndar heilla vatnasviða, m.a. til að tryggja líffræðilegan fjölbreytileika og gæta þess að ganga ekki svo gegndarlaust á hann að við getum ekki endurheimt hann aftur. Það er atriði sem þarf líka að horfa til þegar við ætlum okkur að fara að nýta náttúruna hér eins og við höfum verið að gera.