Orkumál.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmönnum fyrir þessar umræður. Þær eru búnar að vera líflegar og skemmtilegar og mjög áhugaverðar og upplýsandi.
Varðandi það sem hefur verið komið inn á um orkuskort hér á landi þá held ég að við séum öll sammála um að tryggja þurfi heimilum og litlum og meðalstórum fyrirtækjum orku hér á landi. En á móti kemur að við þurfum líka að hugsa um stóru myndina, hvernig samfélagi við viljum búa í og hvernig við ætlum að tryggja innviði, hvernig við ætlum að tryggja grunnþjónustu hér á landi og ég tala nú ekki um að efla enn frekar velferðarkerfið okkar. Til þess þurfum við útflutningstekjur og til þess þurfum við að hafa fyrirtæki í landinu sem þurfa þá einmitt líka að fá orku. Við sjáum að þessar skerðingar hafa áhrif á þessi fyrirtæki og þar af leiðandi á þá vöru sem þau flytja út og fá greitt fyrir. Þannig að þetta er stóra myndin sem við þurfum að huga að og að því að afla orku til þess að hlutirnir gangi og hjól atvinnulífsins geti gengið áfram.
Varðandi verð þá kom hv. þingmaður Samfylkingarinnar inn á að við þyrftum að tryggja heimilunum raforku á sanngjörnu og góðu verði og er ég alveg hjartanlega sammála því. Frumvarpið sem er búið að leggja fram hérna er samt sem áður ekki að tryggja jafnt verð til allra heimila á landinu. Það er vegna þess að einstaklingar sem búa í dreifbýli greiða hærra verð, vegna þess að flutningskostnaðurinn er hærri til dreifbýlisins heldur en hér í þéttbýlinu. Þetta er eitthvað sem við þurfum að skoða því þetta er óviðunandi og alls ekki við það búandi.
Hvað það varðar að ekki sé hægt að tala sýknt og heilagt um orkuskipti þá er ég hjartanlega sammála því að það er tómt að tala um það á meðan við sjáum að fyrirtæki þurfa að grípa til þess að brenna olíu í síauknum mæli, sem er algerlega óviðunandi.
Varðandi orkuþörfina. Við sjáum að þjóðir í kringum okkur eru að leita logandi ljósi að grænni orku. Þau gera ráð fyrir ekki nokkurra prósenta heldur tuga, jafnvel hundraða prósenta aukningu á þörf fyrir orku á næstu árum og ég skil ekki af hverju það ætti að vera eitthvað öðruvísi hér á landi. Sérfræðingar orkufyrirtækja (Forseti hringir.) hafa bent á það í sínum raforkuspám að hér blasi við orkuskortur og það þurfi að bæta úr. (Forseti hringir.)
Varðandi fyrirspurnir hv. þm. Bergþórs Ólasonar þá held ég að það sé í rauninni (Forseti hringir.) tilefni til annarrar umræðu því það er of langt mál að fara yfir. — En takk fyrir góða umræðu.