Orkustofnun og raforkulög.
Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á raforkulögum og lögum um Orkustofnun. Megintilgangur frumvarpsins er að treysta og efla raforkueftirlit samkvæmt raforkulögum í samræmi við kröfur tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2009/72/EB um sameiginlegar reglur um innri markaðinn fyrir raforku. Frumvarpið var lagt fram á 153. löggjafarþingi en hlaut ekki endanlega afgreiðslu og er nú endurflutt með fáeinum breytingum.
Frumvarpið er samið í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu að höfðu samráði við Orkustofnun. Þá var haft samráð við kjara- og mannauðssýslu fjármálaráðuneytisins vegna breytinga á lögum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna sem leiða af frumvarpinu. Áform um lagasetninguna og drög að frumvarpi voru kynnt til umsagnar á samráðsgátt stjórnvalda. Í samráðskafla greinargerðarinnar er greint frá umsögnum og viðbrögðum við þeim.
Tilskipunin gerir kröfu um að ríki komi á fót eftirlitsaðila sem er ekki einungis sjálfstæður gagnvart raforkufyrirtækjum heldur einnig gagnvart stjórnvöldum. Í því felst m.a. að ákvarðanir eftirlitsaðila verða án utanaðkomandi áhrifa, svo sem frá ráðherra, ráðuneyti eða öðrum. Aðildarríkin skulu ábyrgjast sjálfstæði eftirlitsyfirvaldsins og tryggja að það beiti valdi sínu af óhlutdrægni og á gagnsæjan hátt. Sjá skal til þess að eftirlitsyfirvaldið sé lagalega aðgreint og óháð öllum öðrum opinberum aðilum eða einkaaðilum. Starfsfólk eftirlitsins og þeir sem fari með stjórn þess skulu starfa óháð hvers konar markaðshagsmunum eða öðrum opinberum aðilum eða einkaaðilum við framkvæmd eftirlitsverkefnanna. Eftirlitsyfirvaldið skal taka sjálfstæðar ákvarðanir óháð öllum aðilum á sviði stjórnmála og árlegar fjárveitingar til þess skulu aðskildar frá öðrum. Þá er í tilskipuninni mælt fyrir um að stjórnarmeðlimir eða yfirstjórn eftirlitsyfirvaldsins, sé stjórn ekki til staðar, séu skipaðir í fimm til sjö ára tímabil í senn og heimilt sé að endurskipa einu sinni.
Með lögum nr. 112/2019 voru gerðar breytingar á raforkulögum og lögum um Orkustofnun í þeim tilgangi m.a. að innleiða ákvæði í tilskipunarinnar 2009/72/EB hvað varðar kröfur tilskipunarinnar um sjálfstætt raforkueftirlit. Í ljósi sjónarmiða sem fram hafa komið í samskiptum ráðuneytisins og Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) er talin þörf á að hnykkja frekar á tilteknum ákvæðum löggjafarinnar sem tengjast sjálfstæði raforkueftirlitsins.
Með frumvarpinu er lagt til að tilgreint verði sérstaklega í lögum um Orkustofnun að innan stofnunarinnar skuli starfa sérstök eining sem nefnist Raforkueftirlitið. Hlutverk þess skal vera að sinna raforkueftirliti samkvæmt raforkulögum og reglugerðum settum á grundvelli þeirra. Raforkueftirlitið skal vera sjálfstætt í störfum sínum þegar það sinnir raforkueftirliti samkvæmt raforkulögum. Í sjálfstæði Raforkueftirlitsins felst m.a. að ákvarðanir þess við raforkueftirlit séu án áhrifa frá orkumálastjóra, ráðherra orkumála eða öðrum aðilum.
Þá eru lagðar til nokkrar breytingar á raforkulögum í þeim tilgangi að aðgreina með skýrari hættir starfsemi Raforkueftirlitsins frá annarri starfsemi Orkustofnunar. Eftirlits- og stjórnsýsluverkefni sem tengjast flutningi, dreifingu og viðskiptum með raforku eru með frumvarpinu skýrlega falin Raforkueftirlitinu. Lagt er til að Raforkueftirlitinu verði stýrt af embættismanni skipuðum af ráðherra til fimm ára í senn. Embættismaðurinn mun bera faglega og stjórnunarlega ábyrgð á rekstri Raforkueftirlitsins sem og á öðrum verkefnum sem orkumálastjóri felur honum. Gert er ráð fyrir að sama einstakling megi aðeins skipa tvisvar í embætti skrifstofustjóra Raforkueftirlitsins. Með þeim hætti er kröfu tilskipunarinnar um tímabundna skipun yfirstjórnar eftirlitsyfirvaldsins fullnægt og að Raforkueftirlitið haldi sjálfstæði sínu við raforkueftirlit.
Virðulegur forseti. Ég hef hér rakið meginefni frumvarpsins og legg til að því verði að lokinni 1. umræðu vísað til hv. atvinnuveganefndar.