Orkustofnun og raforkulög.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. orkumálaráðherra framsöguna. Mig langar til að spyrja út í þetta mál í tengslum við það hvort hér sé um að ræða það sem sumir í yfirgripsmikilli umræðu um þriðja orkupakkann fyrir nokkrum árum síðan kölluðu landsreglara. Það var nú iðulega talað um að Orkustofnun fengi þetta hlutverk landsreglara, þó að það sé auðvitað ekki lögformlegt heiti, en ég tel fullvíst að hæstv. ráðherra átti sig á hvað er verið að fara þegar ég spyr um þetta og ég spyr sem sagt: Er hér verið að formfesta það sem í umræðunni um þriðja orkupakkann og innleiðingu hans á sínum tíma var kallað landsreglari?
Í öðru lagi vil ég spyrja hæstv. ráðherra. Það kemur hérna fram í 6. kafla greinargerðarinnar undir Mat á áhrifum: „Mögulegur kostnaður vegna áformanna rúmast innan fjárheimilda og hafa áformin því ekki áhrif á fjárhag ríkissjóðs.“ Það segir okkur þingmönnum ekkert um það hver kostnaðurinn við þetta er þannig að ég vil spyrja hæstv. ráðherra hvort raunverulegur kostnaður liggi fyrir og hver hann sé þá.