154. löggjafarþing — 57. fundur,  23. jan. 2024.

Orkustofnun og raforkulög.

29. mál
[15:14]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir. Það er nú þekkt auðvitað að því meiri vandræðum sem hæstv. ráðherra lendir í því ákveðnari er hann í svörum sínum. Mig langar þá að endurorða þessa spurningu þó að efnisatriðin séu þau sömu: Er einhver tenging milli þessa sjálfstæða raforkueftirlits sem hér verður komið fyrir innan Orkustofnunar með einhverjum hætti við hina svokölluðu ACER-stofnun sem tengdist orkupakkaumræðunni jafn mikið og við þekkjum? Sé einhver tenging þar á milli, hvernig er henni háttað? Er þessi eftirlitsaðili fullkomlega sjálfstæður gagnvart þeirri stofnun, af því að nú liggur fyrir hér að hann skuli vera sjálfstæður eins og nokkur kostur er gagnvart sinni stofnun og ráðherra auðvitað? Eru einhver tengsl þarna og í hverju felast þau þá? Og það er bara áhugavert auðvitað að kostnaðarmatið sé eins og það liggur. En ég vil ítreka þessa spurningu eða réttara sagt setja fram þessa spurningu sem er örlítið breytt nálgun á sama efnisatriði.