154. löggjafarþing — 57. fundur,  23. jan. 2024.

Umhverfis- og orkustofnun.

585. mál
[15:41]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég ætla ekkert að byrja hér að skammast í hv. þm. Bergþóri Ólasyni. Það myndi ekki hvarfla að mér þó að hann skammist alltaf í mér. Hins vegar vil ég bara vekja athygli þingheims á því að hv. þm. Bergþór Ólason, og ég vildi að það væri hægt að bóka að það hafi verið gert, að meiri hluti nefndarinnar hefur fullt dagskrárvald í hv. þingnefnd. (Gripið fram í.) Menn hafa nefnilega kvartað undan því að stjórnarandstaðan hafi jafnvel verið að þvælast fyrir eitthvað í málum og gert málum erfitt fyrir. Þannig var það að vísu þegar ég var í þingnefnd. Núna liggur það hins vegar alveg fyrir, virðulegi forseti, að hv. þingmaður er hér að upplýsa að menn þurfi ekki að hafa neinar áhyggjur af stjórnarandstöðunni í hv. þingnefndum því að þetta sé allt hjá meiri hlutanum. Það er bara gott, það er bara mjög gott og ég vek athygli á þessum orðum hv. þingmanns og ég mun vísa í þau.

Varðandi beinu fjárhagslegu áhrifin þá er náttúrlega augljóst að það verða færri forstjórar eða forstöðumenn stofnana. Menn hafa líka séð mikil tækifæri varðandi húsnæðismálin, stoðþjónustu og ýmislegt sem þarna er nefnt. Að auki er búið, og það er í fyrsta skipti sem það er gert, að semja við Ríkiskaup um að fara núna með, varðandi allar stofnanirnar og ráðuneyti, öll innkaup þar til að ná hagræðingu fram þar með skipulögðum hætti. Sömuleiðis erum við að vinna að því að auka það að þau sem njóta þjónustunnar, t.d. orkufyrirtækin þegar þau sækja um leyfi, að þau greiði fyrir þá þjónustu. Þetta er bara í samræmi við það sem gerist annars staðar. Ekkert ósvipað og þegar kemur að þjónustugjöldum eða sértekjum fyrir þjóðgarðana og friðlýstu svæðin. Tekjurnar hafa aukist um 600 millj. kr. núna (Gripið fram í.) á síðustu tveimur árum og það gefur okkur auðvitað aukið svigrúm. Hv. þingmaður þekkir það, þetta hefur margoft verið verið tilgreint. (Forseti hringir.) Hins vegar er það alla jafna þannig að það er kostnaður þegar stofnanir eru sameinaðar. Hins vegar sjáum við ekki fram á það vegna þess að við ætlum að ná þessu fram með hagræðingu eins og ég nefndi í framsögunni og hef margoft nefnt og hefur verið kynnt.