Umhverfis- og orkustofnun.
Virðulegur forseti. Við höfum hér frumvarp til laga um Umhverfis- og orkustofnun. Hér er verið að sameina tvær stofnanir, Umhverfisstofnun og Orkustofnun. Alltaf þegar kemur að svona sameiningartillögum þá fer ég að eins og þegar ég er að keyra varfærnislega yfir vestfirskar heiðar í vondu veðri, ég gíra mig niður. En það eru svo sem ekki neinir skaflar í þessu frumvarpi sem ég stoppa við heldur vil ég koma hingað upp og taka undir og hvetja ráðherrann til góðra verka, eins og segir hérna í markmiðum, að ráðherra setji í reglugerð, að höfðu samráði við Umhverfis- og orkustofnun, nánari ákvæði um skipulag stofnunarinnar, þar með talið staðsetningu starfsstöðva hennar með það að markmiði að fjölga störfum á landsbyggðinni.
Hérna er um að ræða Umhverfisstofnun og ætla ég kannski aðeins að minnast á hana því að starfsstöðvar Umhverfisstofnunar eru níu talsins um allt land. Þeir hafa staðið sig virkilega vel í að vinna svona um landið enda náttúrlega ber nafnið það til að þetta er akkúrat stofnun sem á að vera sem víðast um landið og þau hafa verið duglegust við það að auglýsa störf með vali á staðsetningu. Ég held að það megi, þegar kemur að sameiningu þessara átta stofnana, taka Umhverfisstofnun sér til fyrirmyndar hvað þetta varðar. Ég held að aðrar stofnanir og bara þessi stofnun sem verði til megi horfa til þess og þetta markmið megi vera að leiðarljósi, bæði til þess að sérhæfing svæða sem hefur orðið til í þessum stofnunum víða um landið glatist ekki og eflist frekar.
Við vorum að tala hérna um raforkumálin áðan. Þá er svo mikilvægt að þekkingin komi úr öllum hornum landsins og verði sameinuð. Það er aldrei kannski of oft strikað undir mikilvægi þess einmitt að horfa til allra svæða vegna þess að þegar saman kemur þá verður ekki keðjan sterkari en það sem er veikasti hlekkurinn eins og við þekkjum. Þannig getum við unnið að markmiði þessara laga um að einfalda umsóknarferli, sem við þekkjum til að hafa verið þröskuldar í mörgum málum og mörgum framfaramálum sem víðast.
Það var bara þetta sem ég vildi segja og ég bara vona að við berum gæfu til þess — það er vandmeðfarið að sameina svona margar stofnanir. Ég er ekki að tala um að það eigi ekki að gera það en það er mjög vandmeðfarið, og hafa að leiðarljósi hvað hefur verið gert vel gert innan þeirra stofnana sem koma til með að sameinast og halda áfram með þau góðu markmið. Ef það tekst vel til þá held ég að þau markmið frumvarpsins, eins og að einfalda umsóknarferli og einfalda ýmis ferli sem eru þar inni í þessum stofnunum, auka sérþekkingu, sérþekkingu svæða — þá er því vel komið fyrir ef þetta gengur eftir. Takk fyrir.