154. löggjafarþing — 58. fundur,  24. jan. 2024.

Störf þingsins.

[15:02]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Því miður er vaxandi fátækt og ójöfnuður í dag í boði núverandi ríkisstjórnar. Það er bláköld staðreynd að fátækt og ójöfnuður hefur aukist meira og meira og fleiri og fleiri eiga ekki fyrir lífsnauðsynlegum útgjöldum nú en áður. Þau tekjuminnstu ná ekki endum saman fjárhagslega og hlutfall þeirra sem eru í þessari stöðu hefur stöðugt aukist og þar eru öryrkjar, einstæðir og þeir sem eru á leigumarkaðinum verst setti hópurinn. Fátækt bitnar langverst og mest á börnum og öðrum viðkvæmum hópum samfélagsins okkar, sárafátækt fólk með börn í röðum eftir matargjöfum og mörg þúsund börn sem búa við fátækt og fara svöng í svefninn og bætast hratt í hóp vannærðra barna á Íslandi okkar ríka.

Sárafátækt er skýlaust brot á mannréttindum barna og rænir þau öll tækifæri til lífs og þá einnig vonum þeirra og draumum. Sárafátækt mismunar börnum og skerðir lífsgæði þeirra verulega og þá einnig heilsu þeirra og menntun. Flokkur fólksins hefur ítrekað bent á það böl sem fátækt barna veldur þeim en ákvörðun ríkisstjórnarinnar er að gera ekkert í því að útrýma henni og þeirri framtíðarvá sem af henni stafar. Sárafátækt birtist í mörgum myndum, eins og t.d. mun styttri ævi fólks og aðrar margslungnar afleiðingar fátæktar. Veikindi vegna lélegs fæðis og lélegs heilsuspillandi húsnæðis eru enn ein birtingarmynd sárafátæktar og fylgir henni einelti og félagsleg einangrun ásamt öðrum niðurlægjandi aðstæðum barna.

Það á enginn að alast upp í sárafátækt og hvað þá að búa við viðvarandi sárafátækt með tilheyrandi ítrekuðum sálaráföllum, viðvarandi kvíða og að brenna upp af streitu vegna ömurlegra aðstæðna. Það að fólk þurfi dag eftir dag að upplifa algjöran vanmátt og vonleysi í lífinu fyrir sig og börn sín vegna fátæktar er þessari ríkisstjórn til háborinnar skammar.