Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Frumskilyrði þess að gæta öryggis íbúa landsins er að landamæraeftirlitið virki og við vitum hverjir koma til landsins. Þess vegna hvílir sú skylda á flugfélögum að skila stjórnvöldum og lögreglunni farþegalistum yfir þá farþega sem koma til landsins. Árum saman hafa sömu flugfélögin sem fljúga til landsins komist upp með það að skila ekki farþegalistum.
Virðulegur forseti. Það er ólíðandi að flugfélög eins og allir aðrir sitji ekki við sama borð og fari eftir þeim lögum og reglum sem gilda í landinu. Glæpamenn eru sérstaklega útsmognir við að finna smugu á kerfinu og koma sér til landsins með þeim flugfélögum sem skila ekki listum. Það er heimatilbúið vandamál að hafa þessi mál í skötulíki. Samkvæmt lögum er hægt að svipta flugfélög lendingarleyfi sem afhenda ekki stjórnvöldum og yfirvöldum farþegalistana og því á miskunnarlaust að beita.
Virðulegi forseti. Lögregluembættið á Suðurnesjum er annað stærsta lögregluembætti landsins. Það er húsnæðislaust. Lögreglustöðin við Hringbraut í Reykjanesbæ er lokuð vegna myglu. Það sama á við um stöðina í Grindavík sem auk þess er á hættusvæði og er lokuð og þangað fer enginn maður.
Virðulegur forseti. Við gerum gríðarlegar kröfur til lögreglunnar á Íslandi. Verkefni og aðstaða lögreglunnar á Suðurnesjum er algerlega fordæmalaus. Er til of mikils mælst að við tryggjum lögreglunni á Suðurnesjum viðunandi vinnuaðstöðu og byggð verði ný lögreglustöð í Reykjanesbæ til að hýsa þá mikilvægu starfsemi sem lögreglan sinnir og glímir við þessa dagana, sem er nánast óviðráðanleg?