154. löggjafarþing — 58. fundur,  24. jan. 2024.

Störf þingsins.

[15:07]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Forseti. Ég var þess heiðurs aðnjótandi að fá að sitja fund á vegum félags lyfjafræðinga í gærkvöldi um skaðaminnkandi lyfjameðferðir fyrir fólk með fíknivanda. Hér áður fyrr var það viðtekið viðhorf hér á landi og víðar að til þess að fá aðstoð við fíknivanda þurfi fólk fyrst að hætta neyslu. Það er svolítið eins og að segja að þú þurfir að vera hraustur til að fá heilbrigðisaðstoð. Þegar viðburðurinn var auglýstur á meðal lyfjafræðinga varð sprenging í eftirsókn. 70 lyfjafræðingar mættu á fundinn og enn fleiri nálguðust hann í gegnum fjarfundabúnað. Sem betur fer bendir margt til þess að orðið hafi viðhorfsbreyting innan heilbrigðiskerfisins meðal heilbrigðisstarfsfólks. En þeirrar viðhorfsbreytingar er hins vegar enn að bíða úr fílabeinsturninum, viðhorfsbreytingar er enn að bíða þegar kemur að löggjöf og þeim úrræðum sem tryggð eru.

Með leyfi forseta: „Við lyfjafræðingar erum allir af vilja gerðir. Við viljum aðstoða heilbrigðiskerfið og getum gert svo miklu meira.“ Þetta sagði Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir, formaður Lyfjafræðingafélags Íslands, í aðdraganda fundarins. Heilbrigðisstarfsfólk sem aðstoðar einstaklinga með fíknivanda á hverjum degi kallar eftir faglegu verklagi og skýrari reglum í tengslum við skaðaminnkun. Lyfjafræðingar kalla eftir því að skaðaminnkandi lyfjameðferðir verði skoðaðar á Íslandi og lyfjafræðingar eru meira en tilbúnir í þá vegferð. Lyfjafræðingar upplifa þörfina hjá skjólstæðingum sínum og finnst þeir vera vannýtt stétt.

Forseti. Úrræðin eru til. Við þurfum ekki að finna upp hjólið. Á fundinum var farið yfir stöðuna í Noregi sem í áratugi hefur verið betri en hér og þau komin lengra á veg en við erum í dag. Því miður sýna viðbrögð heilbrigðisráðherra að enn ríkir mikið skilningsleysi. Núverandi kerfi setur heilbrigðisstarfsfólk í þá stöðu að þurfa að velja á milli þess að brjóta lög eða brjóta hippókratesareiðinn.