154. löggjafarþing — 58. fundur,  24. jan. 2024.

Störf þingsins.

[15:09]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf):

Virðulegi forseti. Hér fjöllum við mjög um skatta og skerðingar, álögur, gjöld og allt sem varðar líf fólksins í landinu. Til að stemma stigu við mengun eða til að reyna að bregðast við þeirri miklu loftslagsvá í heiminum sem við blasir hafa verið settar á skattlagningar sem voru, sérstaklega í Evrópu, ætlaðar til þess að fólk notaði frekar lestir en flugfélög til að komast milli borga. Slíkir valkostir eru ekki til staðar á Íslandi. Við höfum flugið til að komast til útlanda og til baka. Rétt fyrir jólin mátti engan tíma missa, það varð að koma ETS-löggjöfinni hér í virkni. Hún leggst bæði á skip og flugvélar. Í skipadeildinni mun þetta hafa þau áhrif að gjöldin hækka auðvitað bara á skipaflutningum og þar með gjöldin á varningnum sem fluttur er, þar með matvælum sem við þurfum að kaupa dýru verði. Í flugbransanum getur þetta orðið umtalsvert. Menn tala um að þetta sé á borð við eina ferðatösku, hvor leggur fyrir sig. Það geta verið 15–16 þús. kr., jafnvel meira. Það er svona sirka eins og fram og til baka til Madríd eða Mílanó á góðu verði.

Ég legg til að þegar þetta brestur á, ef ekki verður annað í boði, þá nýtum við upprunavottorðin sem eru sameign okkar. Þau eru seld frá Landsvirkjun og fleirum fyrir sirka 17 milljarða á ári. Í staðinn fyrir að skattleggja þá sem vilja komast í sólina einu sinni á ári eða jafnvel tvisvar notum við þetta upprunavottorðagjald (Forseti hringir.) til að koma til móts við það sem annars myndi lenda á venjulegu íslensku fólki. Ég varpa þessu hér fram vegna þess að ég sé ekki að við séum að fara að komast undan þessu (Forseti hringir.) að óbreyttu.