Störf þingsins.
Forseti. Með leyfi forseta, segir í frétt á mbl.is: „Líkur eru á því að Seðlabankinn þurfi að hækka stýrivexti ef aðgerðir ríkisstjórnarinnar í Grindavík leiða til mikilla verðhækkana á húsnæði. Þetta er mat hagfræðideildar Landsbankans.“ Ég verð að segja að þetta má ekki gerast, það er einfaldlega þannig. Þetta er í rauninni mjög gott dæmi um það hver hagstjórn ríkisstjórnarinnar á að vera þegar allt kemur til alls. Ef aðgerðir ríkisstjórnarinnar leiða til þess að það verður eitthvert ójafnvægi á húsnæðismarkaði eða í hagkerfinu almennt séð, þá er það líka á ábyrgð ríkisstjórnarinnar að laga það ójafnvægi, ekki með því að henda þeirri ábyrgð bara á Seðlabankann sem þarf þá að bregðast við með stýrivaxtahækkun sem lendir mjög ójafnt í rauninni á landsmönnum, lendir á leigjendum, lendir í matarverði, í verðbólgu og lendir á húsnæðiseigendum vegna íbúðalána og þess háttar. Við verðum að hugsa heildrænt í þessu. Ef ríkisstjórnin er að koma með aðgerðir sem munu valda óróa í hagkerfinu þá á ríkisstjórnin líka að koma með aðgerðir sem jafna það út. Ég held að það sé gott veganesti inn í næstu vikur og þær aðgerðir sem á að leggja til hérna, til að koma til móts við þann vanda sem er í Grindavík. Þá þarf alvarlega að hugsa um hinn helminginn á jöfnunni líka á sama tíma, hvernig á að gera þetta á sanngjarnan hátt þegar allt kemur til alls.