Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Í umræðu um málefni Grindavíkur hér fyrr í vikunni lýsti ég yfir samstöðu og samkennd með Grindvíkingum sem ekki aðeins horfa fram á að missa heimili sín heldur horfa fram á að missa jafnvel samfélag sitt og þau dýrmætu félagslegu tengsl sem fylgja því að búa í og hlúa að samfélagi til lengri tíma. Ég talaði um hversu mikilvægt það væri að gera allt sem í okkar valdi stendur til að varðveita þessi tengsl, til að taka utan um Grindvíkinga, grindvísk börn og aðra sérstaklega viðkvæma hópa sem við berum sérstaka skyldu til að passa vel upp á. Í þessu samhengi fannst mér mikilvægt að vara við þeim aðilum sem nú ríða á vaðið og reyna að stilla Grindvíkingum upp á móti öðrum hópum í samfélaginu okkar, fólki sem vill ala á sundrung frekar en samstöðu, hatri og óþoli frekar en samkennd og samvinnu.
Þessi orð lét ég falla í samhengi af umræðu sem hefur verið að blossa upp varðandi flóttamenn og hvernig þeim á að vera stillt upp gagnvart þeim flóttamönnum sem við höfum nú í eigin landi. En nú hefur keyrt um þverbak þar sem fyrrverandi fjármálaráðherra og núverandi utanríkisráðherra hefur ákveðið að stilla Grindvíkingum upp á móti verkalýðshreyfingunni og segir: Tja, verkalýðshreyfingin verður að sætta sig við það að Grindvíkingar munu sjá til þess að verkalýðshreyfingin fái ekki þær mikilvægu félagslegu umbætur sem hún hefur verið að berjast fyrir. Þetta er nákvæmlega það sem ég var að vara við í ræðu minni um Grindavík. Fólk sem vill ala á sundrung frekar en samstöðu, fólk sem reynir að stilla Grindvíkingum upp á móti öðrum hópum í samfélaginu okkar í pólitískum tilgangi á ekki heima á hinum pólitíska vettvangi.