Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Ég kem hér í dag til að fagna því sérstaklega að um áramótin tók gildi aukinn réttur til endurgreiðslu ferðakostnaðar þeirra sem sækja nauðsynlega heilbrigðisþjónustu sem ekki er aðgengileg í heimabyggð. Hæstv. heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórsson, gerði mikilvæga breytingu á reglugerð um ferðakostnað sjúkratryggðra og aðstandenda þeirra sem eykur réttindi þeirra til endurgreiðslu ferðakostnaðar og um leið er umsóknarferlið einfaldað. Hingað til hafa Sjúkratryggingar tekið þátt í kostnaði við tvær ferðir á ári en með breytingunni fjölgar þeim í þrjár. Þetta á við um nauðsynlegar ferðir þar sem fara þarf lengra en 20 kílómetra eftir þjónustu sem ekki er fyrir hendi í heimabyggð. Áfram má svo greiða fyrir ítrekaðar ferðir ef um er að ræða ákveðna alvarlega sjúkdóma. Einföldun umsókna felst í því að ekki er lengur gerð krafa um að læknir í heimabyggð staðfesti þörf fyrir ferð heldur þarf einungis staðfestingu læknis eða ljósmóður sem veitir þjónustuna á komu og að heilbrigðisþjónustan sem um ræðir sé ekki veitt í heimabyggð. Endurgreiðslan á við um opinbera heilbrigðisþjónustu og aðra þjónustu þar sem Sjúkratryggingar taka þátt í kostnaði sjúkratryggðra. Undir þetta fellur einnig kostnaður við ferðir vegna tannlækninga og tannréttinga með greiðsluþátttöku.
Um leið og ég fagna breytingunni vil ég hvetja Sjúkratryggingar til að bæta framsetningu upplýsinga á Ísland.is og notendaviðmót í réttindagátt þannig að ekki fari á milli mála hvaða gögnum þarf að skila vegna umsókna um endurgreiðslur ferðakostnaðar og einnig hvernig greiðslunum er háttað. Breytingin sem þarna var gerð styður þau mikilvægu markmið að auka og jafna aðgengi landsmanna að heilbrigðisþjónustu óháð efnahag og búsetu.