Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Það hefur komið í ljós að þau sem sitja nú við samningaborðið í Karphúsinu eru ekki eins langt komin og gert var ráð fyrir. Það er greinilegt að ýmislegt vantar upp á til þess að samningar náist. Það getur reynst erfitt að ákveða fyrirkomulag launabreytinga, hvort hækka eigi laun um krónutölu, prósentutölu eða hvort búa eigi til einhverja blöndu af hvoru tveggja, þ.e. að launataxtar hækki samkvæmt krónutölu en síðan verði til hófleg almenn prósentuhækkun sem þeir fá sem ekki taka laun samkvæmt kauptöxtum. Það hefur komið í ljós að aðrir hópar sem standa utan breiðfylkingarinnar innan ASÍ sætta sig illa við krónutöluhækkun og það hlýtur með einhverjum hætti að þurfa að horfa til þess ef um þessa kjarasamningsgerð á að ríkja einhver sátt. Þá skiptir tími kjarasamninga líka máli og það hvort í samninga verði settir einhverjir þeir fyrirvarar sem hægt er að grípa til ef forsendur samninga standast ekki. Stór hluti kröfugerðar stéttarfélaganna snýr síðan að ríkinu og þá að ríkið leggi til verulega fjármuni í tilfærslukerfin sem virðast hafa rýrnað talsvert undanfarinn áratug. Samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef aflað mér er verið að óska eftir því að færa kerfin aftur til ársins 2013 og sýna útreikningar að það muni kosta 25 milljarða á ári út samningstímann. Mér þykir það athyglisvert ef það er staðreynd að kerfin hafi rýrnað um þessa upphæð á tíma sem hefur einkennst af auknum uppgangi í samfélaginu eða hefur í það minnsta aukið kaupmátt margra.
Virðulegi forseti. Maður hlýtur að spyrja um þá pólitík sem meðvitað skerðir rétt þeirra sem þurfa á því að halda að samfélagið standi með þeim.