Störf þingsins.
Herra forseti. Nú er að renna upp fyrir sífellt fleirum og jafnvel ráðherrum hvers konar ófremdarástand er orðið ríkjandi hér í málefnum hælisleitenda eftir undanfarin stjórnleysisár. Hæstv. utanríkisráðherra hefur gert þetta að umtalsefni og ekki var annað að heyra á honum en að hann væri að kalla eftir algjörri stefnubreytingu frá því sem verið hefur í tíð núverandi ríkisstjórnar. Þetta voru á margan hátt áhugaverðar og mikilvægar ábendingar frá hæstv. ráðherra en hann virtist hins vegar kenna Alþingi um að hafa ekki leyst þessi mál, þ.e. það væri vandi Alþingis að ríkisstjórnin hefði ekki komið sér saman um nokkurn skapaðan hlut í þessu og viðhaldið hér algeru stjórnleysi. En nú vandast málið enn fyrir Alþingi því að eins og komið hefur í ljós, og birtist í Morgunblaðinu í morgun, er ekki einu sinni verið að fylgja þeim lögum sem þó eru til staðar til að taka á þessum vanda. Og hvað á Alþingi þá að gera? Stjórnvöld verða nefnilega að lúta lögum og fylgja þeim eftir. Það liggur fyrir að tíu flugfélög skila ekki farþegalistum í samræmi við lög og það hefur gert okkur nánast ókleift að fylgjast með því hverjir eru að koma til landsins. Hver verða viðbrögðin við þessu? Alþingi þarf ekki að breyta lögunum í þessu tilviki, þau eru þegar til staðar. En mun ríkisstjórnin aldrei þessu vant taka sér tak og sjá til þess að lögunum verði framfylgt? Ef hún gerir það ekki, ef hún gerir það ekki strax, þá þarf þingið að láta ríkisstjórnina vita að það sætti sig hvorki við framgöngu ríkisstjórnarinnar né aðgerðaleysi hennar þegar við á.