154. löggjafarþing — 58. fundur,  24. jan. 2024.

Störf þingsins.

[15:32]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Við erum minnt á það um þessar mundir að samtryggingin er fyrir okkur öll. Þeir sem ekki eru bjargar þurfi í dag gætu orðið það í næstu viku. Fyrir okkur Íslendingum er þetta jafn sjálfsagt og vatnið sem rennur úr krananum okkar. Þetta er alger grundvallarforsenda fyrir því að geta upplifað öryggi í félagslega sterku samfélagi.

Hæstv. utanríkisráðherra kom sterkur inn í umræðuna á dögunum og með frekar ódýrum hætti. Hann hefur núna reynt að höfða til öryggistilfinningar fólks og heldur því blákalt fram í fjölmiðlum að við Íslendingar tökum við fleiri flóttamönnum en aðrar Norðurlandaþjóðir og það út af fyrir sig sé stórkostleg ógn við daglegt líf okkar og öryggi. Það er rétt að taka það fram að tölur sem hæstv. ráðherra vísar í og koma úr dómsmálaráðuneytinu eru meira og minna allar rangar, svo skeikar um hundruð einstaklinga. Sem dæmi, bara eitt dæmi sem mér gefst færi á að nefna hér í dag, kemur fram að Finnland hafi móttekið 4.683 umsóknir flóttamanna árið 2022 en Flóttamannastofnun SÞ segir að þær hafi verið 5.827. Við getum haldið áfram að bera saman við önnur Norðurlönd og talað um Úkraínubúa. Þeir sem sækja um tímabundna vernd falla utan þessara norrænu samtalna en eru teknar með í íslenskar. Það er nefnilega list að fara vel með tölur. Að blekkja með þeim verður kannski orðið að sérhæfingu stjórnvalda í útlendingamálum.

Ég vil biðja landsmenn um að hafa það hugfast að hlutfall fólks á flótta og þeirra sem koma til Íslands utan Evrópu er töluvert minna af þeim heildarfjölda sem hingað kemur til lands í leit að öryggi og tækifærum. En þeim fylgja vissulega áskoranir og ef við ætlum að taka vel á móti útlendingum almennt þurfum við að hafa áhuga og þekkingu á velferðarkerfunum okkar og sýna fram á það að móttaka og inngilding þeirra sé sjálfbær og fjármögnuð. Það fer kannski ekkert svo mikið fyrir þeim áherslum í málflutningi þeirra sem tala hvað mest fyrir breyttri stefnu í útlendingamálum. (Forseti hringir.) Ég kalla eftir málefnalegri umræðu hér um útlendingamál. Ég kalla eftir því (Forseti hringir.) að við vekjum athygli á örygginu okkar alla sem á rót í samtryggingunni, (Forseti hringir.) fjármögnuðum velferðarkerfum.