áhrif ófriðar á þróunarsamvinnu Íslands.
Virðulegi forseti. Það er átakanlegt að fylgjast með afturþróuninni í þróunarríkjum um þessar mundir. Þegar ég legg þessa spurningu fyrir hæstv. utanríkisráðherra um áhrif aukins ófriðar á þróunarsamvinnu Íslands vonast ég til þess að opna á umræðu um þessi mál. Við vitum að fátækt og ójöfnuður fer víða vaxandi og fjöldi fólks á flótta og vergangi hefur aldrei verið meiri en nú. Það er ekki bara vegna vaxandi óstöðugleika í heiminum, við megum ekki gleyma áhrifunum sem ákvarðanir okkar í heimsfaraldri höfðu á þróunarríkin. Þau voru ekki í sömu aðstöðu og við til að verjast þeim áföllum. Við getum verið viss um að skipulögð talning dauðsfalla af völdum Covid undanskilur mörg, ekki síst í öðrum heimshlutum en okkar.
Ég fundaði nýlega með utanríkisráðherra Malaví, sem vakti sérstaklega athygli mína á þessu og bað okkur sérstaklega um að gleyma ekki þessum heimshluta nú þegar við tökumst á við ófrið, bæði ófrið sem stendur okkur mjög nærri en líka ófrið sem fangar mjög athygli okkar af skiljanlegum ástæðum. Það verður því athyglisvert að heyra athugasemdir hæstv. ráðherra við fyrirspurn mína.