áhrif ófriðar á þróunarsamvinnu Íslands.
Virðulegi forseti. Ég vil fagna tækifærinu til að ræða þessi mál hér í þinginu og tek undir með hv. þingmanni um að við séum að ræða mál sem við þurfum að hafa augun á og fylgjast með hvernig þróast frá einum tíma til annars, ekki síst á ófriðartímum eins og þeim sem við upplifum nú. Vaxandi óstöðugleiki á heimsvísu hefur haft töluverð áhrif á alþjóðlega þróunarsamvinnu eins og merkja má af gögnum, til að mynda frá þróunarsamvinnunefnd OECD, DAC. Hækkun framlaga til opinberrar þróunaraðstoðar undanfarin ár má fyrst og fremst rekja til aukinnar mannúðaraðstoðar og tilkostnaðar innan framlagsríkja vegna fjölgunar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttafólks. Í aðildarríkjum DAC jókst mannúðaraðstoð t.d. um 22% frá 2019 til 2022 og kostnaður vegna umsækjenda um vernd og flóttafólks nam 14,4% af heildarframlögum árið 2022 samanborið við 5,2% árið áður, 2021.
Innrásarstríð Rússa í Úkraínu eitt og sér hefur haft víðtæk áhrif á framlög til málaflokksins en stuðningur við Úkraínu nam 7,8% af heildarframlögum til málaflokksins árið 2022. Eins og stundum er sagt er erfitt að verja sömu krónunni í tvígang þannig að ef ekki kemur eitthvað annað til þá er veruleg hætta á því að það þrengi að framlögum ríkja til hefðbundinnar þróunaraðstoðar. OECD hefur varað við því að heimsfaraldur og innrásarstríð auki hættuna á því að fátækari ríki fjarlægist þau ríkari enn frekar en orðið er, bæði í efnahagslegum og pólitískum skilningi. Staðreyndin er að framlög til fátækustu ríkjanna hafa að miklu leyti staðið í stað eða lækkað samkvæmt þessum opinberu upplýsingum. Á sama tíma er eftirspurn eftir opinberri þróunaraðstoð meiri en nokkru sinni fyrr, m.a. vegna afleiðinga heimsfaraldursins Covid og líka vegna loftslagsbreytinga. Svo má ekki gleyma innrásarstríðinu í Úkraínu. Það hefur haft verulega mikil áhrif, bæði hvað varðar framlög en líka á aðfangakeðjur, matvælaverð og orkuverð, og það hefur eitt og sér valdið miklum áhrifum vegna verðbólguáhrifa, að ekki sé talað um þegar aðfangakeðjurnar raskast.
Þessi atriði sem ég tel hér fram hafa líka haft áhrif á þróunarsamvinnu Íslands sérstaklega, eins og annarra framlagsríkja. Þó hefur stuðningur við mannúðaraðstoð verið vaxandi á síðastliðnum árum. Við veittum til að mynda 31% af heildarframlögum til mannúðaraðstoðar árið 2022 samanborið við 20–22% frá 2019–2021. Það hefur verið mikill vöxtur þar.
Stuðningur Íslands við Úkraínu í formi mannúðaraðstoðar og efnahagsuppbyggingar á árinu 2023 er hærri en stuðningur okkar við nokkurt tvíhliða samstarfslandanna þriggja, Malaví, Úganda eða Síerra Leóne. Af því að Malaví er nefnt og formaður utanríkismálanefndar nefndi að hún hefði átt fund með ráðherra frá Malaví sem var hér í heimsókn fyrir skemmstu þá átti ég sömuleiðis fund með henni og eftir að við höfðum rætt um samstarfsverkefni ríkjanna tveggja þá barst talið að víðara samhengi hlutanna, hvernig gengi almennt og hverjar væru helstu áskoranir í Malaví, t.d. í efnahagslegu tilliti. Kom ekki mikið á óvart að þar var töluvert mikil áhersla af þeirra hálfu lögð á uppbyggingu samgönguinnviða. En í efnahagsmálunum eru það skuldir sem eru að hrjá þessi ríki og í tilviki Malaví voru skuldir við Kína gríðarlegur baggi og virðast í fljótu bragði ekki vera sjálfbærar og erfitt að sjá hvernig ríkið á að rísa undir þeirri skuldabyrði til lengri tíma.
Við erum nú að vinna að langtímastefnu um framlög til mannúðar- og uppbyggingarverkefna í Úkraínu. Við þurfum áfram að forgangsraða til að tryggja, og það hefur verið stefna ríkisstjórnarinnar að forgangsraða með þeim hætti, að hefðbundin mannúðaraðstoð okkar líði ekki fyrir þær áherslur sem við höfum verið með og tengjast stuðningi við uppbyggingu og mannúðaraðstoð í Úkraínu. Ég vona að þetta svari þessum helstu álitamálum sem hér voru borin upp.