154. löggjafarþing — 58. fundur,  24. jan. 2024.

áhrif ófriðar á þróunarsamvinnu Íslands.

523. mál
[15:47]
Horfa

Magnús Árni Skjöld Magnússon (Sf):

Hæstv. forseti. Ég vil byrja á að þakka fyrir þessa umræðu. Hún er mikilvæg. Það eru áberandi átök í heiminum í dag enda ófriðvænna í honum síðan bara á níunda áratug síðustu aldar. Þessi átök eru líkleg til að taka athygli og fé, t.d. í hælisleitendamálum, eins og hefur verið komið inn á. Ég hef þó ákveðinn fyrirvara um að telja það fé og slík framlög til þróunarsamvinnu eða slíks málaflokks því að það má eiginlega segja að það sé í eðli sínu aðstoð við einstaklinga en ekki við þróun samfélaga. Þess vegna langaði mig til að koma hérna upp og leggja áherslu á að það er mikilvægt að missa ekki boltann þegar kemur að samstarfi við bæði okkar sérvöldu samstarfsríki og einnig þá hugsanlega að taka þátt í því sem við höfum gert til að mynda í borgaralegri þjónustu við friðargæslu þar sem því yrði við komið. Og ef því verður við komið hér þá hefði ég áhuga á að heyra hvað utanríkisráðherra hefur að segja um starfsemi íslensku friðargæslunnar í dag, hvar hún er að fókusera sitt starf.