154. löggjafarþing — 58. fundur,  24. jan. 2024.

áhrif ófriðar á þróunarsamvinnu Íslands.

523. mál
[15:48]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Diljá Mist Einarsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir svarið og þeim hv. þingmönnum sem lögðu til umræðunnar. Hæstv. ráðherra fór ágætlega yfir það hvernig áhrifin hafa verið, bæði mikil og margvísleg, m.a. höfum við varið mun hærri fjárhæðum í mannúðaraðstoð. Hæstv. ráðherra kveikti síðan á umræðu sem við þyrftum gjarnan að taka hér upp síðar varðandi áhrif Kína á þróunarríki, m.a. á samstarfsríki okkar.

Ísland er lítið í nánast öllu samhengi. Framlag okkar til alþjóðlegrar þróunarsamvinnu skiptir samt máli. Það hef ég sjálf fengi vissu um með því að kynna mér vel starf okkar. Einn af framúrskarandi starfsmönnum utanríkisráðuneytisins, Inga Dóra Pétursdóttir, lýsti því einmitt nýlega svo skemmtilega í viðtali sem ég var að hlusta á, þar sem hún lýsti því hvernig í héraði sem við vinnum mjög náið með, Mangochi-héraði í Malaví, er Ísland sagt vera stórasta land í heimi.

Við þær aðstæður sem nú eru uppi virðast margir farnir að draga saman seglin í þróunarsamvinnu eða beina henni nær heimahögum. Dæmi um þetta er nýleg stefnubreyting Finna í þróunarsamvinnu sem munu draga verulega úr þróunarsamvinnu í Afríku. Ég vona að við höldum áfram góðu samstarfi okkar við samstarfslöndin í þróunarsamvinnu og gerum meira en ekki minna fyrir þá sem eru í sárastri neyð í heiminum. Til þess þurfum við auðvitað að koma okkur saman um það hvernig fjármunir okkar nýtast sem best, hvernig við hjálpum sem flestum. Eins og hæstv. ráðherra kom inn á hér áðan þá eyðum við nefnilega ekki sömu krónunni tvisvar.