154. löggjafarþing — 58. fundur,  24. jan. 2024.

áhrif ófriðar á þróunarsamvinnu Íslands.

523. mál
[15:50]
Horfa

utanríkisráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegur forseti. Það er alveg hárrétt að við þurfum að vera mjög vakandi yfir forgangsröðun í þessum málaflokki og alveg gild ábending sem hér kom fram um það hvernig við ættum að flokka framlögin sem mannúðaraðstoð eða t.d. aðstoð við fólk á flótta. En við höfum valið frá því að við gerðumst aðilar að DAC að fylgja alfarið þeirra viðmiðum þannig að tölur okkar væru sambærilegar við það sem er að gerast hjá öðrum þjóðum. Það hefur stundum leitt til þess að við höfum þurft að endurskoða áætlanir okkar. Það hefur oftast þá verið þannig að við höfum getað talið minna af því sem fer til hælisleitenda sem hluta af okkar þróunaraðstoð.

Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að við gætum gert betur og meira. Við höfum smám saman á síðastliðnum áratug verið að hækka sem hlutfall af landsframleiðslu okkar framlög inn í þessa málaflokka. Það er auðvitað gríðarlega krefjandi verkefni þegar hagkerfið er að vaxa svona hratt eins og það hefur verið að gera. Það er bara heilmikil áskorun þótt það væri ekki annað en að halda í við vöxt landsframleiðslunnar. En nú liggur fyrir þinginu áætlun um að við höldum áfram og ég verð að segja bara mjög metnaðarfull áform sem liggja hér fyrir þinginu. Það mun kalla á forgangsröðun vilji menn fylgja því eftir sem þar er lagt upp með.

Ég er sömuleiðis þeirrar skoðunar að við ættum að gera meira af því heldur en við höfum gert til þessa að efla tvíhliða aðstoð og gera aðeins minna af því að senda háar fjárhæðir inn í fjölþjóðastofnanir þar sem við eigum miklu erfiðara með að fylgja fjármagninu eftir. Með því er ég ekki að fella neina dóma um það fjölþjóðastarf sem þær alþjóðastofnanir vinna sem þar eiga í hlut. Ég held að þær séu að gera gríðarlega mikið gagn mjög víða. En við eigum kannski aðeins að breyta hlutföllunum þannig að það byggist meira upp af þekkingu hér heima fyrir, af vettvangi, góðar reynslusögur, og við styrkjum stjórnkerfi okkar í því að fara með þessa fjármuni og stýra þeim og lærum yfir tíma það hvar við getum látið mest gott af okkur leiða.