álagningarstofn fasteignaskatts.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. innviðaráðherra fyrir svarið. Mér fannst yfirferð hæstv. ráðherra yfir gríðarlegar tekjur sveitarfélaga og vöxtinn sem fer með himinskautum styðja vangaveltur um endurskoðun álagningarstofnsins. Þetta eru jú fjármunir sem koma bara beint úr vösum landsmanna. Ófyrirsjáanleikinn er einmitt hvað ósanngjarnastur við þetta fyrirkomulag og mér heyrðist hæstv. ráðherra ekki vera ósammála þeim pælingum. Hækkun fasteignamats hefur engan aukinn kostnað í för með sér fyrir sveitarfélög. Það er auðvitað fráleit pæling að það að nágranninn þinn geri gott mót við sölu fasteignar hafi áhrif á fjárhæð skattanna sem þú greiðir. Nágranni þinn var kannski búinn að lappa upp á húsið, mála það og gera það huggulegt, og svo dettur hann í lukkupottinn, selur húsið sitt á uppsprengdu verði. Svo flytur hann bara í vel rekið sveitarfélag, sveitarfélag sem er kannski rekið af Sjálfstæðismönnum, með lægri útsvarsprósentu, lægri fasteignaskatta, en þú situr eftir með himinháa fasteignaskatta.
Það eru vonbrigði að heyra að það standi ekki til að endurskoða þennan ósanngjarna skatt en hægt að binda kannski örlitla vonarglætu við að það sé þó einhver vinna í gangi í hópum við að skoða þetta fyrirkomulag.