snjallvæðing umferðarljósa í Reykjavík.
Frú forseti. Ég held reyndar að aldrei sé of oft farið með æðruleysisbænina. Hins vegar vil ég segja hérna í lokin og þakka fyrir ágæta umræðu að það sem er lykilatriði í þessu er að þetta kerfi sé eitt, það sé sem sagt Vegagerðin sem stýri þessu kerfi, öllu umferðarljósakerfinu sameiginlega á höfuðborgarsvæðinu öllu. Það er auðvitað að gerast með þessari vinnu sem er í gangi, með því að vera með öll þessi ljós samtengd í einhverri snjalllausn þá hlýtur það að gerast á einum stað. Við sjáum örugglega líka fyrir okkur að í framtíðinni fáum við rauntímaupplýsingar, annaðhvort beint inn í bílana væntanlega, á skjáina í bílunum eða í það minnsta í leiðsögutækin, þar sem verður sagt frá því ef það eru einhverjar truflanir fram undan eins og við þekkjum sums staðar. Þeim mun mikilvægara er að þessu öllu sé stýrt miðlægt.
Varðandi núverandi tækni þá held ég að ég muni það rétt, og bið þingheim að umbera það vitni ég rangt til, að það sé fyrirtækið Siemens sem er með þetta og er með slíkt kerfi í mörgum öðrum borgum Evrópu. Ég vil halda því fram að það sé ekki galli eða einhver vangeta eða vanþekking eða tæknileysi sem valdi því að þetta sé ekki komið lengra en raun ber vitni. Svo vil ég segja að lokum að til þess að allt þetta umferðarflæði gangi nægilega vel þá er samgöngusáttmálinn lykilatriði, ekki að umferðarljós virki fyrir bíla eingöngu eða að almenningssamgöngur virki. Samgöngusáttmálinn og hvernig hann fléttar inn ólíka umferð á stofnbrautum, hann er lykilatriði í uppbyggingu þeirra, uppbyggingu almenningssamgangna og einnig möguleikum á fjölbreyttum ferðamátum eins og að fara gangandi, sem er auðvitað mjög hollt og gott ef það er hægt, og hjólandi, sem mjög vaxandi hópur hefur gert og er reyndar alveg ótrúlega stór hópur miðað við færðina sem oft er á Íslandi. En þetta er leiðin, samgöngusáttmálinn er tækið.