framfylgd reglna um rafhlaupahjól.
Virðulegur forseti. Það er gott að taka umræðu um þessi rafhlaupahjól sem eru dálítið ný hér í umferðinni og hafa verið svolítið eins og villta vestrið undanfarin ár. Þau eru auðvitað stórhættuleg, bæði þeim sem á þeim eru og öðrum vegfarendum. Við höfum heyrt tölur um að um fjórðungur slysa, alvarlegra umferðarslysa, sé af völdum þessara rafhlaupahjóla. Fólk er að koma inn á slysadeild með mjög alvarlega áverka, mænuskaða og heilaskaða o.s.frv., eftir að hafa dottið á þessum hjólum eða keyrt á aðra. Þess vegna er gríðarlega mikilvægt að það myndist dálítið fastur rammi utan um notkun þessara hjóla og að við tökum á þessu brýna vandamáli og að þeim lögum og reglum sem þó eru til staðar um þau sé framfylgt.