154. löggjafarþing — 58. fundur,  24. jan. 2024.

fjárhæðir styrkja og frítekjumörk.

390. mál
[16:47]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni kærlega fyrir þessa umræðu hér í dag. Það segir í 10. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, að veittir séu styrkir til kaupa á bifreiðum líkt og hv. þingmaður nefndi. Hér er um þrjá flokka tilvika að ræða sem eru nánar útfærður ásamt fjárhæðum í reglugerð. Fjárhæðir þessara styrkja höfðu hækkað stopult, sumar ekki frá árinu 2015 og aðrar ekki síðan 2020. Það er þess vegna sérstaklega ánægjulegt að þann 1. janúar síðastliðinn tók gildi breyting á umræddri reglugerð um uppbætur og styrki til hreyfihamlaðra einstaklinga vegna bifreiða. Þessi breyting felur því í sér fyrstu hækkun fjárhæða í átta ár hvað viðkemur tveimur af þremur flokkum tilvika sem áður er vísað til og síðan hefur einn flokkur ekki hækkað frá 2020. Hækkunin tekur mið af hækkun vísitölu neysluverðs frá síðustu hækkun fjárhæða þannig að ég tel hér um eðlilegar hækkanir að ræða.

Fjárhæð uppbótar vegna bifreiðakaupa er nú 500.000 kr. og vegna kaupa á fyrstu bifreið er fjárhæðin 1 millj. króna. Styrkur til kaupa á bifreið fyrir þau sem eru verulega hreyfihömluð nemur eftir hækkunina 2 millj. kr. Þá hefur hámarksfjárhæð styrks til kaupa á sérútbúinni bifreið hækkað í 7,4 millj. kr. en þar er um að ræða einstaklinga sem vegna mikillar fötlunar komast ekki um án sérútbúinnar bifreiðar. Upphæð þessa styrks hafði staðið í stað frá júní 2020 eins og og áður er getið. Loks er veittur 10% hærri styrkur fyrir sérútbúna hreina rafbíla samkvæmt reglugerðinni og eru hámarksfjárhæðir þar 8.140.000 kr. Það verður hægt að sækja um styrk til Orkusjóðs vegna sérútbúinna hreinna rafbíla fyrir hreyfihamlaða án þess að hámark sé á kaupverði þeirra. Hér með eru stjórnvöld að stíga mikilvægt skref í því að gera að veruleika réttlát umskipti þegar kemur að orkuskiptum og loftslagsmálum hér í landi og það er ánægjulegt að geta tekið þátt í og hafa staðið fyrir þeim breytingum.

Annað sem er mikilvægt við þessa breytingu sem tók gildi um áramót er að það er verið að tryggja hækkanir á uppbótum og styrkjum vegna slíkra bifreiðakaupa árlega, þ.e. að þær hækki árlega í samræmi við hækkun bóta almannatrygginga en ekki á margra ára fresti eins og verið hefur. Þetta er að mínu mati mjög stórt hagsmunamál fyrir fólk með hreyfihömlun sem hér hefur verið komið í höfn.

Aðeins að frítekjumörkum. Almannatryggingakerfi örorkulífeyrisþega ber einkenni þess að breytingar hafa um langt árabil verið gerðar í áföngum þegar brugðist er við áskorunum og aðstæðum á hverjum tíma. Hefur það orðið til þess að kerfið hefur orðið flóknara með tímanum eins og margoft hefur verið bent á í þessum sal og er ég með í gangi vinnu við að einfalda kerfið. Það er einmitt eitt leiðarljósið í þeirri vinnu sem nú stendur yfir varðandi heildarendurskoðun örorku- og endurhæfingarlífeyriskerfisins að breyta fyrir lögum um almannatryggingar og lögum um félagslega aðstoð þar sem áhersla er lögð á sameiningu greiðsluflokka og einfaldari reglur um útreikninga. Grundvallaratriði er að sameining og einföldun miði alltaf að því að þau njóti mests stuðnings sem lakast standa og gera stuðningskerfið sanngjarnara og gegnsærra svo það gagnist þeim sem best sem á stuðningi þurfa að halda. Endurskoðunin tekur m.a. til frítekjumarka og standa væntingar mínar til að nýja kerfið muni helgast af heildarhugsun þannig að svokallaður bútasaumur kerfisins heyri sögunni til.

Í þessari heildarendurskoðun sem er í gangi núna er lögð áhersla á, eins og hér sagði áðan, að kerfið sé einfaldað og gert sanngjarnara en það er í dag. Þar undir heyrir samspil bóta og frítekjumarka. Það er ekki rétt að frítekjumörk og styrkfjárhæðir standi í stað árum saman án nokkurs tillits til verðlags- og launaþróunar. Frítekjumörk hafa ekki staðið í stað í tíð minni sem ráðherra. Frítekjumark atvinnutekna var hækkað úr 110.000 kr. á mánuði í 200.000 kr. á mánuði í upphafi árs 2023 sem þegar er farið að skila t.d. fleira fólki út á vinnumarkað. Húsnæðisbætur hafa verið hækkaðar um fjórðung frá miðju ári 2022 og ég gæti talið fleira upp.

Ég vil segja að lokum að ég tel hins vegar æskilegt að horfa til þess að frítekjumörkin haldi betur í við hækkanir almannatrygginga þannig að kaupmáttur þeirra haldist.