fjárhæðir styrkja og frítekjumörk.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir þessi svör hans. Ég fagna því að það standi til að taka fast á þessum málum í endurskoðun almannatrygginga í málefnum öryrkja og ég styð það heils hugar að þetta verði einfaldað og þetta bútasaumaða kerfi heyri sögunni til. Hér kom fram að ef frítekjumark atvinnutekna væri uppreiknað samkvæmt launavísitölu þá væri það um 300.000 kr. núna og það myndi líka hvetja fleiri til að fara út á vinnumarkaðinn og reyna að finna sér vinnu. Ég spyr hvort hann geti ekki séð til þess að þessi frítekjumörk séu ekki að skerða aðrar bætur í dag þannig að allir geti nýtt sér þau sem vilja en ekki bara sumir. Sumir verða fyrir gífurlegum skerðingum ef þeir ætla að reyna að fara út á vinnumarkaðinn. Það sem er kannski oft sorglegast í því dæmi er að fólk fer og spyr: Má ég vinna? Þá er sagt: Jú, þú mátt vinna, þú færð 200.000 kr. frítekjumark — sem er ekki rétt. Það þarf að taka hvern og einn einstakling og reikna nákvæmlega út hvernig staða hans er og hversu marga bótaflokka hann er með til að átta sig á því hvort hann megi nýta sér þessi frítekjumörk.
Það er ánægjulegt að það sé kominn sérstyrkur fyrir þá sem vilja taka rafmagnsbíla og ég vona heitt og innilega að við séum núna að binda enda á þetta bútasaumaða kerfi. Ég spyr líka: Hvenær reiknar hann með að endurskoðun almannatrygginga sem varða öryrkja komi hingað inn í þingið?